156. löggjafarþing — 16. fundur,  18. mars 2025.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna og stjórnsýsla jafnréttismála.

75. mál
[15:48]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Hér er að mörgu leyti um jákvætt mál að ræða sem má taka undir og það er rétt að endurskoða þessa þætti sem snúa að jafnlaunavottun. Það sem mér finnst kannski undarlegt í þessari umræðu er það að sá flokkur sem stóð í rauninni fyrir jafnlaunavottuninni virðist ekkert kannast við það hér í umræðunni. Það kemur fram í þessu ágæta skjali að hv. þingmaður hefur lagt frumvarpið fram tvisvar áður og þá voru engir af þeim flokkum sem eru núna í ríkisstjórn að stöðva málið þannig að það eru einhverjir aðrir sem hafa verið í veginum fyrir því.

Mér finnst samt sem áður mikilvægt að ræða þetta mál út frá því að þetta kostar mikið og það er ýmislegt sem bendir til þess að það sé ekki að skila mjög miklu. Ég vil benda á að það sem kemur fram í greinargerðinni, að þetta kosti 20.000 milljónir á ári. Þetta er víst heldur lægri upphæð ef marka má það sem kom fram hjá Samtökum atvinnulífsins í nóvember síðastliðnum, það má jafnvel deila í þessa upphæð með þremur. En engu að síður eru þetta háar upphæðir og við verðum auðvitað að spyrja okkur, eins og kemur hérna fram hjá hv. þm. Sigmari Guðmundssyni, hvort það eigi að gera þetta betur, hvort við þurfum eitthvað að snúa af braut, einfalda þetta, minnka kostnaðinn. Mér finnst það vera rétt og þess vegna þakka ég hv. þingmanni og þingmönnum sem standa að þessu frumvarpi fyrir að leggja það fram. Mér finnst það vera mjög mikilvæg umræða að við séum ekki að koma af stað einhverjum kerfum sem eru rekin hérna út í eitt og eru jafnvel farin að vernda sig. Við erum svo sannarlega með verkefni úti í atvinnulífinu sem við þurfum að hugsa betur um. Mér dettur nú í hug í þessu sambandi hvort við ættum að koma upp einhverri íslenskuvottun. Það hafa komið að máli við mig atvinnurekendur sem hafa viljað getað lagt fram eitthvert próf þar sem þeir geta sagt: Þú þarft að ljúka þessu prófi innan sex mánaða og ef því er lokið og þú stenst það þá færðu hér áframhaldandi vinnu.

Ég held að við þurfum að skoða þetta kerfi og önnur sem við komum af stað með gagnrýnum huga og leysa úr þessu máli með jákvæðum hætti án þess að vera að gera þessa jafnlaunavottun að einhverju máli okkar í Flokki fólksins, eins og mér heyrðist frummælandi koma fram með. Ég held að það sé miklu frekar verkefni okkar allra að finna leið til að ná svo sannarlega fram engum mismuni kynjanna hvað varðar laun, það vill það enginn þingmaður. Hvort þetta sé tækið núna 2025, þó að það hafi þótt vera eitthvað sem var árennilegt fyrir bráðum áratug, má spyrja um, þannig að ég fagna þessu frumvarpi og þeirri umræðu sem hefur átt sér stað hér.