jöfn staða og jafn réttur kynjanna og stjórnsýsla jafnréttismála.
Virðulegur forseti. Hver sagði að þetta hafi ekki verið prófsteinn á þá ríkisstjórn? Hver sagði það? Þetta er stefna okkar Sjálfstæðismanna, að afleggja þessa jafnlaunavottun. Ég hélt ekki tölu um það hvað ég tók oft umræðuna, m.a. við ríkisstjórnarborðið, út af þessu. Ríkisstjórnin sprakk af ástæðu, m.a. vegna þess að þingmál frá mér fékk ekki afgreiðslu í fleiri, fleiri mánuði. Ég bara baðst opinberlega afsökunar á því að hafa verið í ríkisstjórn með Viðreisn þar sem við gengum frá þessu. Hver eru rök hv. þingmanns? Eigum við að halda þessum ólögum, þessum kostnaði sem skilar ekki neinu? Áðan var það vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn var í ríkisstjórn með Viðreisn. Þetta var baráttumál Viðreisnar, þeir fengu ekki ESB og þá vildu þeir fá jafnlaunavottun. Það var ástæðan í fyrra andsvarinu fyrir því að við þurfum að halda þessu. Núna er ástæðan fyrir því að við eigum ekki að klára þetta mál sú að það kláraðist ekki í tíð síðustu ríkisstjórnar. Já, ókei. Við útskýrum þetta bara fyrir atvinnulífinu. Þetta eru góð rök. Ef það hefur farið fram hjá hv. þingmanni þá voru nokkrar deilur í síðustu ríkisstjórn. Ég held að allir hafi vitað af því nema kannski hv. þm. Sigmar Guðmundsson. Það var ekki alveg samstaða um öll mál. Ef við hefðum haft forræði á þessu máli og ráðið öllu, eins og hv. þingmaður sagði, þá hefði nú ýmislegt verið gert allt öðruvísi. En núna eru rökin þessi. Áðan voru rökin þau að við ættum að halda þessu af því að við vorum með Viðreisn í ríkisstjórn þegar Viðreisn keyrði þetta í gegn. Það er hætt. (Forseti hringir.) Núna eru rökin fyrir því að við eigum að halda þessu að við vorum í ríkisstjórn með Vinstri grænum og Framsókn og þetta kláraðist ekki þá. Eru það rökin?