156. löggjafarþing — 16. fundur,  18. mars 2025.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna og stjórnsýsla jafnréttismála.

75. mál
[16:25]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Er hv. þingmaður að grínast eða? (SGuðm: Nei.) Já, hann er nefnilega í flokki þar sem er hæstv. fjármálaráðherra sem sagði að smábátasjómennskan væri efnahagsleg sóun — efnahagsleg sóun. Það er auðvitað þá ekkert hræsni að þeir séu að fara í 48 dagana. Er það, virðulegi forseti? Það er ekkert svoleiðis. Hann er svo jákvæður að létta byrðum af atvinnulífinu, svo ég vitni beint í orð hans, að Viðreisn er mögulega tilbúin að fara í einhverja vegferð til að skoða þetta, mögulega tilbúin að fara í einhverja vegferð til að skoða þetta.

Virðulegur forseti. Það vita allir, það er alveg komið fram, að Sjálfstæðisflokkurinn var með Viðreisn þegar hún keyrði þetta í gegn. Það liggur alveg fyrir. Það er líka alveg ljóst að í þriggja flokka stjórn sem við vorum í síðast náðum við ekki öllum málum okkar í gegn. Það liggur alveg fyrir. En það er líka vitað að Viðreisn gekk fyrir síðustu kosningar til atvinnulífsins og sagði: Við ætlum að létta af ykkur álögum. Við ætlum að létta af ykkur reglubyrði. Það er hrein og klár hræsni, svo ég noti nú orð hv. þingmanns, þegar menn eru algjörlega með rauða dregilinn, ekkert mál að gera þetta, ganga frá því, að þeir séu þá mögulega tilbúnir að fara í einhverja vegferð til að skoða þetta. Við komumst ekki lengra með hv. þingmenn Viðreisnar.

Auðvitað er það þannig að Viðreisn gengur í rauninni bara út á eitt mál og það er að koma völdum til Brussel og fara í Evrópusambandið. Við getum ekki einu sinni kennt Brussel þetta. Þetta er séríslensk þvæla og þetta er svo sannarlega prófsteinn á núverandi ríkisstjórn og hv. þingmenn Viðreisnar. Það liggur alveg fyrir. Alveg sama hvað hv. þingmenn benda oft á það að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið í (Forseti hringir.) síðustu tveim eða þrem ríkisstjórnum þá breytir það engu um eðli málsins og það er: Ætlum við að samþykkja þetta mál eða ekki? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)