156. löggjafarþing — 16. fundur,  18. mars 2025.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna og stjórnsýsla jafnréttismála.

75. mál
[16:36]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta og árétta að mér finnst nálgun þingmannsins á margt bara vera mjög málefnaleg. Það hefur verið gert lítið úr því í þessari umræðu, reyndar ekki af hv. þingmanni, að hér séu einhver undirliggjandi markmið sem skipti miklu máli og að við eigum einhvern veginn að líta fram hjá markmiðunum af því að okkur finnist að einhver tiltekin lög hafi ekki gengið nægilega vel. Auðvitað hlýtur það alltaf að vera þannig að það er eitthvert markmið sem við erum að reyna að ná. Eins og ég hef verið að rekja þá hefur þetta verið ákveðið ferli sem þingheimur hefur verið mjög sammála um að fara í.

Mig langar svolítið að spyrja hv. þingmann sömu spurningar og ég hef áður spurt í þessari umræðu — vegna þess að mér finnst þetta vera furðuleg ráðgáta. Mér finnst það ótrúlega furðuleg ráðgáta að það sé stjórnmálaflokkur hér á þingi með svona rosalega ábyrgðarfælni, mikinn ábyrgðarflótta, að hafa sett lög 2017 og kannast síðan ekkert við það. Þetta var gert undir forystu Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn. Það var bara svoleiðis. Síðan aftur, þá í annarri ríkisstjórn með öðrum flokkum, hafa menn tækifæri til að standa við eitthvað af þeim stóru orðum sem falla hérna í dag. Ekkert gert 2020. Þetta mál sem hér hefur verið lagt fyrir tvisvar áður, það var ekkert gert með það í fyrri skiptin en nú á þetta allt í einu að vera einhver ógurlegur prófsteinn á núverandi ríkisstjórn þegar þetta er sagan sem hér hefur verið og ég er að rekja. Svoleiðis er það bara og þessu komast menn auðvitað ekkert fram hjá. Mig langar því að spyrja hv. þingmann sömu spurningar og ég hef spurt hér áður: Ef þetta er ekki hræsni, hvað þá?