156. löggjafarþing — 16. fundur,  18. mars 2025.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna og stjórnsýsla jafnréttismála.

75. mál
[16:46]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég ætlaði í sjálfu sér ekkert að blanda mér í þessa umræðu um jafnlaunavottunina af því að mér heyrðist þetta vera á ágætum rekspöl og flutningsmenn frumvarpsins halda fram þeim málstað sem þyrfti að gera hér. En ég hjó hins vegar eftir því að hv. þm. Sigmar Guðmundsson, þingmaður ríkisstjórnarinnar úr Viðreisn, var að fara yfir atkvæðagreiðslur frá þeim tíma þegar þetta var samþykkt í lög, jafnlaunavottunin árið 2017, sem var vissulega, eins og fram hefur komið, í ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar, hvar ég sat í ríkisstjórn. Þetta mál var svona, mætti kalla, málið eina af hálfu Viðreisnar í því ríkisstjórnarsamstarfi sem var nú endasleppt. Hv. þm. Sigmar Guðmundsson lét þau orð falla við upptalningu sína á því hverjir höfðu samþykkt jafnlaunavottunina í lög, að þar hefði sú sem hér stendur samþykkt það heils hugar. Það má því segja, virðulegur forseti, að ég sé komin hingað til að bera af mér sakir, ef svo mætti að orði komast, en ég nota hins vegar ræðuformið til þess. Það var auðvitað ekki þannig að ég hefði samþykkt innleiðingu á jafnlaunavottun heils hugar heldur þvert á móti. Þurfi einhver að velkjast í vafa um afstöðu mína til jafnlaunavottunar almennt, nú og áratug aftur í tímann, getur hinn sami komist að því að ég hef haft uppi ákaflega skýran málflutning um það mál og gerði það líka í aðdraganda þess að jafnlaunavottunin var samþykkt í lög árið 2017, svo mjög að það voru nú fluttar af því mjög margar fréttir að dómsmálaráðherra á þeim tíma myndi leyfa sér að efast um kynbundinn launamun og allar þær rannsóknir og áformin um jafnlaunavottunina. En það er þannig, eins og fram hefur komið hér, að þegar menn eru í ríkisstjórn þá neyðast menn, eins og einn óbreyttur þingmaður nefndi það á sínum tíma þegar hann greiddi atkvæði með þessu máli, jafnlaunavottuninni 2017, til þess að kyngja ælunni, eins og sagt er. Ríkisstjórnin á þessum tíma, ríkisstjórnin sem Viðreisn var í, naut ekki ríks þingmeirihluta og þetta var eitt af því sem menn þurftu að láta yfir sig ganga. En það þurfti hins vegar enginn að velkjast í vafa, og ég efast um að nokkur maður sem hefur fylgst með umræðu um þessi mál síðustu áratugina hafi gert það, um mína afstöðu til þessara mála. Þess vegna kom það mér á óvart að hv. þm. Sigmar Guðmundsson sem starfaði sem fréttamaður til langs tíma hafi látið það eftir sér að halda því fram hér í þingsal að ég hafi heils hugar stutt innleiðingu jafnlaunavottunar.

En úr því að ég er komin hingað, virðulegur forseti, til að bera af mér þessar sakir, sem ég hef nú gert, þá er kannski ekki úr vegi að ég varpi fram þessum sjónarmiðum sem ég hef ætíð haldið uppi, a.m.k. síðustu áratugi, eftir að menn fóru að hefja rannsóknir á þessu sviði. Ég hef bent á að í þessum launakönnunum, þar sem vissulega kom fram launamunur á milli kynjanna, þurfi að hafa það í huga að þegar leiðrétt hefur verið fyrir þáttum á borð við vinnutíma og mannaforráð, menntun og reynslu þá sé aðeins eftir um 5% tölfræðilega marktækur munur á launum kynjanna. Ég hef líka bent á að það séu ýmsir huglægir og ómælanlegir þættir sem erfitt sé að fella inn í þessi líkön sem ætlað er að mæla launamun. Þá hef ég líka bent á það sem menn mega heldur ekki horfa fram hjá, að mínu mati, að vinnumarkaðurinn er nokkuð kynjaskiptur. Þótt þar hafi orðið veruleg breyting á, eða er svona smám saman undanfarna áratugi að verða breyting á því, þá er hann eftir sem áður nokkuð kynjaskiptur. Það eru þessi svonefndu kvennastörf og karlastörf og þessi kynjaskipting þvælist verulega fyrir raunhæfum samanburði á launum kynjanna.

Ég nefndi að það væri kannski 5% kynbundinn, eins og það er kallað, launamunur. Þrátt fyrir slíkan mun þá er þetta allt of lítill munur til að hægt sé að fullyrða að það sé markviss kynbundinn launamunur kynjanna. Margar skýrslur hafa verið gerðar um þetta og í aðdraganda innleiðingar á jafnlaunavottun árið 2017 lá fyrir ný skýrsla sem velferðarráðuneytið lét vinna árið 2015. Margir vinstri menn sem voru með mér í ríkisstjórn á þessum tíma hentu sér í fósturstellinguna þegar ég leyfði mér aðeins að draga fram staðreyndir úr þeirri skýrslu, þær ályktanir sem þar var komist að eða voru dregnar af niðurstöðum rannsókna. Með leyfi forseta, þá segir í þessari skýrslu:

„Ómálefnalegan, óskýrðan launamun má skilgreina sem launamun sem eingöngu er vegna kynferðis. Um er að ræða þann mun sem eftir stendur þegar tillit hefur verið tekið til allra þeirra þátta sem áhrif hafa á launamyndun. Í reynd er í besta falli hægt að nálgast þennan mun. Launamyndun byggist oft á þáttum sem tölfræðin veitir ekki svar við. Við getum því ekki með vissu ályktað að sá óskýrði launamunur sem hér hefur verið metinn sé eingöngu vegna kynferðis.“

Þetta er ályktun skýrsluhöfunda velferðarráðuneytisins á árinu 2015 sem lét framkvæma mjög viðamikla rannsókn á þessu og þetta er í takti við margar aðrar rannsóknir líka. Í mínum huga er ekki nokkur vafi hérna og ég held að það væri til bóta fyrir umræðu um þessi mál ef menn myndu gefa aðeins meiri gaum að tölfræði í þessum málum, ef menn stöldruðu aðeins við þessar prósentutölur. Það hefur svo sem löngu verið viðkvæðið að Íslendingar og almenningur, og ekki er ég þar undanskilin, er kannski ekki glöggur að átta sig á svona tölfræðilegum mun, eins og það er kallað. Menn kannski fengu mikla kennslu í því í faraldrinum á sínum tíma og á líkindareikningi og öðru en fæstir nýttu sér þann tíma til nokkurs gagns í þeim efnum. Það myndi að mínu mati hjálpa þessari umræðu ef menn reyndu aðeins að glöggva sig á tölfræðinni í þessu og hvað það er sem telst marktækur munur í þessum efnum og síðan en ekki síst auðvitað hvort menn haldi virkilega, og það þurfa menn að vega og meta, að opinber afskipti eða opinbert inngrip geti haft einhver áhrif í þá átt að draga úr þessum tölfræðilega mun.

Það liggur fyrir eða a.m.k. var flutt um það frétt í Morgunblaðinu í dag, þar sem verið er að rifja upp samantekt frá Samtökum atvinnulífsins sem kannski helst hafa skoðað áhrifin af innleiðingu jafnlaunavottunar, að það er þeirra mat að innleiðingin hafi kostað að meðaltali 7,6 milljónir á fyrirtæki og jafnlaunastaðfestingin kostaði 2,7 milljónir. Það getur reyndar verið að ég sé hér að vitna í hv. flutningsmann þessa frumvarps, Diljá Mist Einarsdóttur. Ég hygg að hún hafi farið með þessar tölur hérna, að þessi endurnýjun jafnlaunavottunar kosti rúmar 2 milljónir. Í frétt Morgunblaðsins í dag kemur fram að þessi helstu kostnaðarliðir eru aðkeypt ráðgjöf og þjónusta, nýr hugbúnaður, samningur við svokallaða vottunaraðila og svo síðast en ekki síst tími starfsfólks fyrirtækja, sem er auðvitað metinn til fjár. Hjá mörgum fyrirtækjum er þessi tími stærsti kostnaðarliðurinn þótt erfitt geti verið að meta það með nákvæmum hætti.

Það verður svo sem ekki annað sagt en að þetta hafi verið atvinnuskapandi, jafnlaunavottunin, fyrir suma. Fyrir ráðgjafarfyrirtæki sem eru auðvitað komin núna á, ég ætla ekki að segja spenann, ég heyrði að speninn var til umfjöllunar hér í öðru þingmáli fyrr í dag, en það er augljóst að einhver fyrirtæki eru kannski orðin háð þessu lögbundna opinbera inngripi sem jafnlaunavottunin er. Og þótt þetta sé atvinnuskapandi, eins og ég nefni, þá ætla ég að leyfa mér að fullyrða að þetta er ekki verðmætaskapandi. Það eru engin verðmæti sem fást fyrir þennan pening sem fyrirtækin eru að eyða til að uppfylla löggjöf um jafnlaunavottun.

Virðulegur forseti. Ég ætla að láta þetta nægja en ég lýsi yfir ánægju minni með þetta frumvarp og mun styðja það. Ég hvetja hv. þingmenn, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu, til þess að horfa á þetta aðeins ópólitískum augum, horfa bara á staðreyndirnar í þessu máli og standa með flutningsmönnum frumvarpsins í því að auka verðmætasköpun á Íslandi, auka möguleika fyrirtækja til þess að fá sem mest út úr sínu starfsfólki og síðast en ekki síst með því um leið að lýsa yfir trausti á íslensku atvinnulífi, trausti til þess að menn reki fyrirtæki með siðferði og fyrst og fremst auðvitað bara með hagkvæmni að leiðarljósi. Það er frá mínum bæjardyrum séð enginn vafi á því að ekkert íslenskt fyrirtæki leyfi sér eða sé með einhverja markvissa mismunun á milli starfsfólks, hvort heldur með tilliti til kynjasjónarmiða eða einhverra annarra sjónarmiða. Fyrirtæki sem rekin eru á Íslandi, þessi litlu og meðalstóru fyrirtæki sem íslensk fyrirtæki almennt eru, berjast flest í bökkum. Þau þurfa að fá hæfasta starfsfólkið, þurfa að fá sem mest út úr því starfsfólki og þessi fyrirtæki hafa ekki tíma fyrir einhverja skipulagða mismunun eða þess háttar. Mér finnst það ekki síst merki um það að menn treysti íslensku atvinnulífi að það þurfi ekki að vera með opinbert apparat, opinberar tilskipanir um jafnlaunavottun til að reyna að tryggja að það sé ekki einhver munur sem er, eins og ég hef rakið í þessari ræðu minni, nánast ekki tölfræðilega marktækur, þ.e. launamunur kynjanna.