156. löggjafarþing — 16. fundur,  18. mars 2025.

sveigjanleg tilhögun á fæðingar- og foreldraorlofi.

21. mál
[17:12]
Horfa

Flm. (Bergþór Ólason) (M):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu sem við þingmenn Miðflokksins erum flutningsmenn að, ég sem framsögumaður og aðrir þingmenn sem meðflutningsmenn. Hún er svohljóðandi:

„Alþingi ályktar að fela félags- og húsnæðismálaráðherra að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, þess efnis að foreldrum verði tryggður sameiginlegur réttur til tólf mánaða fæðingarorlofs sem þeir geti skipt með sér á 24 mánaða tímabili.“

Þetta er ekki flókin aðgerð en myndi gera foreldrum kleift að hafa miklu betri stjórn á því með hvaða hætti barni væri tryggð sem best umönnun og umsjón foreldra umfram þá forræðishyggjulegu nálgun sem nú er viðhöfð. Þingsályktunartillaga þessi er nú lögð fram í fimmta sinn en var síðast lögð fram á síðasta þingi, 155. löggjafarþingi, og er nú endurflutt óbreytt.

Á 151. þingi voru samþykkt ný lög um fæðingar- og foreldraorlof sem ég vísaði til áðan, nr. 144/2020. Samkvæmt lögum hafa foreldrar mun takmarkaðri möguleika en áður til að taka ákvarðanir um þá tilhögun fæðingarorlofs sem hentar barni þeirra best og með hag þess að leiðarljósi. Með þeim er þrengt verulega að rétti foreldra til að ákveða sjálfir hvernig fæðingarorlofi þeirra með barni sé best háttað.

Þingsályktunartillaga þessi er lögð fram með það að markmiði að tryggja jafnan rétt foreldra til sjálfstæðrar ákvarðanatöku um tilhögun fæðingarorlofs en það er mat flutningsmanna að foreldrar séu að jafnaði réttu aðilarnir til að meta hvað sé barni þeirra fyrir bestu.

Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum um fæðingar- og foreldraorlof er tekið fram að tilefni og nauðsyn lagasetningar sé að rúm 20 ár séu liðin frá því að eldri lög um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, tóku gildi og því sé rétt að laga fæðingarorlofskerfið að þeirri miklu þróun sem hefur orðið í samfélaginu, þar á meðal í jafnréttismálum og stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Flutningsmenn fá ekki séð hvernig forræðishyggja gagnast jafnréttisbaráttu foreldra. Í lögum er kveðið á um að hvort foreldri um sig skuli fá greitt sex mánaða fæðingarorlof. Réttur foreldra til að skipta með sér fæðingarorlofi er skertur úr þremur mánuðum í sex vikur. Flutningsmenn fá ekki séð hvernig sú breyting sem varð við gildistöku nýju laganna kemur til móts við þarfir fólks í nútímasamfélagi þar sem sveigjanleiki er að jafnaði meiri en hann var fyrir 20 árum við gildistöku eldri laga. Þá er erfitt að sjá hvernig áðurnefndar breytingar gagnast jafnrétti og sérstaklega hvernig þær gagnast stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Aðstæður foreldra á vinnumarkaði eru mismunandi og kalla á aukinn sveigjanleika við töku fæðingarorlofs. Flutningsmenn telja að réttindi barns til umgengni við foreldra séu best tryggð með því að fela foreldrunum sjálfum að skipa tilhögun fæðingarorlofs síns.

Markmið frumvarpsins, sem hér er lagt til að félags- og húsnæðismálaráðherra verði falið að leggja fram, verði að tryggja rétt foreldra til að deila með sér 12 mánuðum fæðingarorlofs án þess að hlutast sé til um nánari skiptingu þeirra milli með lögum. Þannig verði best tryggt að mismunandi fjölskylduaðstæður bitni síður á réttindum barnsins. Með auknum sveigjanleika við töku fæðingarorlofs er jafnframt komið til móts við þá foreldra og þau börn sem ekki fá inni á ungbarnaleikskóla eða hjá dagforeldri.

Virðulegur forseti. Þetta mál gengur út á það að tryggja að foreldrar hverju sinni geti tekið þær ákvarðanir sem þeir telja barni sínu fyrir bestu. Hér er lagt til að dregið verði úr stýringu og forræðishyggju þeirri sem hert var á með síðustu lagabreytingum í þessum efnum. Það eru margþætt mál undirliggjandi í dag í samfélaginu sem færast til skárri vegar. Þau leysast ekki að fullu en við þekkjum umræðuna um dagvist. Við þekkjum umræðuna sem snýr að einstæðum foreldrum eða foreldrum þar sem foreldri er alveg úr myndinni. Mörg þeirra vandamála færast til betri vegar ef við bara treystum foreldrum barns til að ráðstafa þessum réttindum sem hljóta að vera fyrir barnið. Ef við ætlum okkur að ná fram einhverjum vinnumarkaðslegum sjónarmiðum þá eigum við að gera það með sérstakri löggjöf þar að lútandi, ekki réttindum sem a.m.k. í orði kveðnu eiga að vera fyrir barnið en ekki í vinnuréttarlegu tilliti í stóru myndinni.

Ég læt þetta duga í bili og vona að að aflokinni þessari umræðu gangi málið til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og fái þar hraða og skjóta afgreiðslu.