fyrirkomulag matvælaframleiðslu til neyðarbirgða.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um fyrirkomulag matvælaframleiðslu til neyðarbirgða. Flutningsmenn á þessari þingsályktunartillögu eru þingmenn Framsóknarflokksins; sá sem hér stendur, Halla Hrund Logadóttir, Ingibjörg Isaksen, Sigurður Ingi Jóhannsson og Stefán Vagn Stefánsson.
Þessi ágæta þingsályktunartillaga er hér flutt í þriðja sinn og ef einhvern tímann hefur verið nauðsynlegt að fjalla um þessa hluti á þeim tímum sem við lifum í dag þá held ég að það hafi aldrei verið nauðsynlegra að velta þessu fyrir sér. Við erum háð innflutningi á hinum ýmsu aðföngum til þess eins að framleiða hér matvæli. Við erum háð innflutningi á olíu. Við erum háð innflutningi á korni. Við erum háð innflutningi t.d. á áburði. Þegar Geir Haarde bað guð að blessa Ísland hér um árið þá voru nú kornbirgðir landsins ekki nema upp á einhverja 14 eða 15 daga. Það var einungis fyrir velvilja frænda okkar í Noregi og Færeyjum sem það var hægt að flytja inn kornvöru, hvort sem var til manneldis eða til skepnuhalds.
Við höfum átt hér á þessu þingi þó nokkrar umræður um þetta tiltekna mál, hvort sem það eru sérstakar umræður eða þá þessi þingsályktunartillaga sem hér hefur verið flutt og því miður erum við enn þá á sama stað. Þeir tímar sem við lifum á í dag eru um margt mjög áhugaverðir. Það er stríð í bakgarðinum hjá okkur, búið að vera það í ein þrjú ár. Það er verið að herða á tollum. Það er ófriður mjög víða í kringum okkur. Nýr forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, hefur boðað ákveðnar tollahækkanir á innflutning þangað og þetta getur haft áhrif á verð á þeim aðföngum sem við þurfum hingað til lands til þess að framleiða mat.
Matvælaframleiðsla á Íslandi á undir högg að sækja þó svo að við séum að veiða mikið af fiski, framleiða lax í sjókvíum og sömuleiðis í landeldi. Allt þetta sem um er rætt er háð innflutningi á ákveðnum aðföngum. Sem dæmi er fóður til laxeldis meira og minna innflutt, olían á skipin o.s.frv. o.s.frv. Við höfum ekki að mér vitandi einhverjar lágmarksbirgðir af olíu. Þær eru ekki til staðar. Það er svona hipsum haps hvað er til. Það er engin regla um það hvernig við ætlum að haga þessu. Sömuleiðis á það við um kornið.
Virðulegi forseti. Ég held að það sé mikilvægt að við horfum í þessa hluti. Það hafa verið skrifaðar skýrslur og vitna ég hér til skýrslu sem Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri skilaði af sér 2021 þar sem er farið mjög ítarlega yfir þessa hluti og tengist það fæðuöryggi þjóðarinnar. Þegar fjallað er um fæðuöryggi þjóðarinnar þá tengist það óhjákvæmilega þessum þætti, þ.e. neyðarbirgðum. Í þessari tillögu hér er fjallað um það að horft verði til þess að hið opinbera greiði framleiðendum hér á landbúnaðarvörum fyrir það að geyma eitthvað af þeim framleiðsluvörum sem hægt væri að geyma, t.d. eins og kjöti á frosti, mjólkurvörum, G-mjólkurvörum o.s.frv. o.s.frv. Um það er fjallað í þessari þingsályktunartillögu.
Það er mjög mikilvægt að við verðum búin að tryggja — segjum sem svo að við upplifum aftur það sem gerðist þegar Geir Haarde bað guð að blessa Ísland 2008, þá vorum við ekki einu sinni með fjármuni til að takast á við að fá til okkar aðföng. Það er eitt af því sem við þurfum sömuleiðis að horfa til í þessu samhengi. Við verðum að hafa eitthvert bolmagn og ákveða hvert við ætlum að fara, hvað við ætlum að kaupa og við þurfum að eiga einhvern varasjóð til þess að takast á við þetta. Auðvitað, virðulegi forseti, er ég að mála hérna upp ákveðna dökka mynd en á þessum tímum — mér láðist að minnast á þau eldsumbrot sem hafa verið hér viðvarandi undanfarin ár og er ekki séð fyrir endann á þeim — verðum við að vera sjálfum okkur nóg og vera tilbúin til að takast á við allar þær aðstæður sem hugsanlega geta komið upp. Við erum bara ekki þannig stödd á landakortinu að hingað getum við keyrt til okkar vöru eða með lestum eða öðru. Annaðhvort flytjum við vörur með flugi eða þá sjóleiðina.
Síðan komum við að því: Hvað eru nágrannar okkar að gera um þessar mundir? Frændur okkar á Norðurlöndum hafa fengið tilmæli, bæði í Finnlandi og Svíþjóð, um hvað einstaklingar og fjölskyldur eigi að eyða í neyðarbirgðum. Vissulega eru þeir nær þessum stríðshrjáðu löndum en vegalengdirnar eru ekki neitt óskaplega langar, það tekur ekki nema þrjá tíma að fljúga hingað ef út í það er farið, en stjórnvöld þar á bæ hafa brýnt fyrir sínum þegnum það hvað þau eigi að eiga, búið að senda bæklinga og annað.
Við eigum langt í land og við erum komin yfir það, virðulegi forseti, að segja bara: Þetta reddast. Það er ekki skynsamlegt. Ef við horfum bara á matvælaframleiðsluna, burt séð frá þessari þingsályktunartillögu sem hér er til umræðu, þá viljum við öll halda matvælaframleiðslu hér á fullum sving og vera með allt í blóma. En staðan er bara sú að hún á í harðri vök að verjast gegn innflutningi, það hefur dregið úr framleiðslunni, bændum er að fækka o.s.frv. Þar þurfum við sömuleiðis að taka vel utan um og bæta í og framleiða meira og horfa til þess að við getum átt í þessu samhengi birgðir upp á að hlaupa ef illa fer. Í því samhengi finnst mér mjög mikilvægt að farið verði ofan í saumana á því hverjar séu lágmarksbirgðir af olíu sem við viljum eiga hér á landi, hverjar séu lágmarksbirgðir af kornvöru o.s.frv., áburði. Það eina sem við getum framleitt hér í áburð er köfnunarefni, við erum háð því að flytja önnur aðföng inn, grunnefnin sem eru fosfór og kalí. Jú, jú, tækifærin eru víða en við skulum undirbúa okkur, ég held að það sé mikilvægt og það er mikilvægt fyrir íslenska þjóð. Við sjáum líka að það er aðdáunarvert að fylgjast með utanríkisráðherra, hvað hún er að keyra á hlutina núna varðandi öryggi landsins og annað og velta fyrir sér hvernig við getum verið með okkar varnir. Hluti af því að verjast er að geta fætt sjálfan sig.
Síðan getum við horft til þess sömuleiðis varðandi mannafla og annað, sem er náttúrlega allt annað mál sem snýr að almannavörnum og eflingu löggæslunnar í tengslum við þær ógnir sem að okkur steðja og það hafa verið nefndar tölur sem snúa t.d. að Landhelgisgæslunni og öðru. Allt þetta byggist á því að við höfum þá hráefnin úr að moða til að geta beitt okkur ef illa fer, þ.e. matvæli og eldsneyti. Þó að við eigum hér töluvert af rafmagni þá er það einu sinni þannig að olían er okkur mikilvæg á skipin og bílana og fleiri tæki sem við þurfum að nota. Það var einu sinni sagt í flimtingum: Hvað eruð þið að velta fyrir ykkur fæðuöryggi? Af hverju flytjið þið þetta ekki allt inn? Þið eruð hvort eð er svo háðir innflutningi á aðföngum til að framleiða matvæli. Jú, vissulega er mikið til í því. En þegar þú horfir á heildarmyndina varðandi það að skapa gjaldeyri þá er betra að flytja inn hlutina og framleiða hér matvælin heldur en að flytja allt inn til landsins. Við verðum alltaf háð einhverjum innflutningi á matvælum, vissulega. Við verðum alltaf háð innflutningi á olíu og kornvörum.
Nú held ég að það sé mikilvægt að þessi ágæta þingsályktunartillaga, sem ég mæli hér fyrir í þriðja sinn, henni verður væntanlega vísað til atvinnuveganefndar og fær þar vonandi umfjöllun hvað það varðar — þessu tengt þá held ég að sé mikilvægt að minnast á að það hefur verið af hendi stjórnvalda ákveðið átak til að efla kornrækt hér á landi og töluverðir fjármunir verið settir í það, sem er vel. Það er hluti af því að byggja undir og það held ég að sé hluti af þeirri umræðu sem þó hefur þá einhver skref tekið fram á við hvað þetta varðar. Þó að við höfum tekið þessi skref í kornræktinni þá höfum við ekki tekið þennan þátt nógu alvarlega. Ég sé að hér í þingsal eru menn sem hafa mun meira vit á almannavörnum heldur en sá sem hér stendur og ég á nú von á því að þeir leggi eitthvað til málanna í þessari umræðu. Það eru hv. þingmenn Víðir Reynisson og Grímur Grímsson sem ég á við hér, frú forseti, í þessu samhengi. Í öllu því umróti sem á sér stað í heiminum, þeim viðbrögðum sem ríkisstjórnin er að velta fyrir sér varðandi varnir landsins, varðandi allt sem er að gerast og ég met mjög mikils — og ég tók það fram áðan hvernig utanríkisráðherra fer fram fyrir skjöldu varðandi varnir landsins — þá er þessi þáttur grundvallaratriði til þess að við getum haldið uppi vörnum. Ef þetta er ekki til staðar þá er þetta svipað og að byggja hús á sandi.
Frú forseti. Ég held að ég láti þetta duga og vonast til þess að það verði hér einhver lífleg umræða í kjölfarið. Síðan fer þessi ágæta þingsályktunartillaga til atvinnuveganefndar og fær þar vonandi góða umfjöllun.