leikskólar.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu sem nær til laga nr. 90/2008 og varðar breytta tilhögun til handa sveitarfélögum, þ.e. heimild til þeirra til að horfa til fleiri þátta en einungis aldurs barna þegar dagvistunarplássum er úthlutað á leikskólastigi. Ég flyt þetta ágæta mál með hv. þm. Önnu Maríu Jónsdóttur, Örnu Láru Jónsdóttur, Degi B. Eggertssyni, Eydísi Ásbjörnsdóttur, Guðmundi Ara Sigurjónssyni, Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni og Rögnu Sigurðardóttur og hafi þau miklar þakkir fyrir.
Breytingarnar eru í sjálfu sér ekki flóknar. Lagt er til að við 1. mgr. 26. gr. laganna bætist nýr málsliður sem er svohljóðandi: Sveitarstjórn er heimilt að haga innritun með tilliti til þess að systkini eða börn sem hafa sama lögheimili geti sótt sama leikskóla, sem og með hliðsjón af nálægð leikskóla við lögheimili barna.
Frumvarp þessa efnis hefur þrívegis verið lagt fram áður, nú síðast á 155. löggjafarþingi, og var það í fyrsta sinn lagt fram þegar ég tók hér sæti sem varaþingmaður árið 2022. Það er ekki að ástæðulausu sem ég legg til þessar lagabreytingar. Ég hef í störfum mínum sem lögfræðingur hjá stærsta sveitarfélaginu, þ.e. Reykjavíkurborg, orðið þess áskynja ár hvert, og sérstaklega nú í kringum marsmánuð, hversu mikla erfiðleika óbreytt ástand hefur í för með sér þegar kemur að úthlutun leikskólaplássa í stærsta sveitarfélaginu. Ég veit að margar fjölskyldur kvíða því ótt og títt fyrir þessa úthlutun hvort barnið þeirra fái yfirhöfuð leikskólapláss í því erfiða ástandi sem hefur ríkt um allt land. Og ef þau fá síðan þetta leikskólapláss, hvort það sé þá í sama skóla eða sömu stofnun og eldra systkini barnsins, sé það fyrir hendi, gengur líka í eða þá í leikskóla sem er að öðru leyti nálægt heimilinu.
Heimildin sem ég legg til hér er í rauninni þríþætt; að heimilt verði að horfa til fjölskylduaðstæðna annars vegar og hins vegar staðsetningar og nálægðar við leikskólann. Í óbreyttu ástandi er horft til hvorugra þátta. Einungis er litið til kennitölu barnsins við ákvörðun um það hvernig börnum er úthlutað plássum. Ég ræddi við leikskólastjóra í dag sem sagði að þetta væri gífurlega erfið staða og mætti í rauninni segja að hún færi næstum því versnandi. Í dag eru t.d. í ónefndum leikskóla í Reykjavíkurborg tvö börn fædd í október og nóvember, verða sem sagt tveggja ára á þessu ári, sem fá ekki inni í leikskóla með eldra systkini, einungis vegna þess að það eru þarna eldri börn sem sækja um. Ég er ekki að segja að það sé ómálefnalegt að horfa til kennitölu barns eingöngu. Ég er alls ekki að segja það. Þessi lausn sem lögð er til mun óumflýjanlega mögulega hafa þau áhrif að börn sem eiga ekki eldri systkini munu þurfa að bíða eitthvað aðeins lengur. Það er bara staðreynd. Ég ætla ekki að draga fjöður yfir það. Ég held hins vegar að við getum öll verið sammála um að óbreytt ástand getur hreinlega ekki gengið lengur. Það þýðir að það eru hérna fjölskyldur sem þurfa að fara mjög langt á milli, á tvær mismunandi stofnanir bara til að geta látið hversdaginn ganga upp.
Það er ekki að ástæðulausu að ég legg þetta til í formi frumvarps. Einhver skyldi halda að það væri bara hægt að breyta þessu með einu pennastriki, laga þetta bara einhvern veginn á skóla- og frístundasviði hér í Borgartúni og breyta bara þessum reglum. Staðreyndin er hins vegar sú að leynt og ljóst hefur verið reynt að gera það frá því á árinu 2008 þegar borgarlögmaður skilaði áliti í kjölfar umkvartana einstakra foreldra yfir systkinaforgangsreglunni sem þá var viðhöfð og borgarlögmaður komst að þeirri niðurstöðu að sú tilhögun samræmdist bara hreinlega ekki jafnræðisreglu, hvorki stjórnarskrárinnar né stjórnsýslulaga, einfaldlega vegna þess að löggjafinn — og núna er ég ekkert að leggja áherslu á hlutverk löggjafans í þessu ferli — hafði ekki kveðið á um það með afdráttarlausum hætti að heimilt væri að mismuna börnum á grundvelli þess sem hér er verið að tilgreina, þ.e. annars vegar systkinastöðu og fjölskyldustöðu og svo er það sem er í rauninni skrefinu lengra, að horfa meira til landfræðilegrar staðsetningar skólanna og reyna að ná fram einhverri svona hverfislegri bestun í þágu félagslegrar samþættingar sem mér er mjög hugleikin sem jafnaðarmanni.
Ég vil líka leggja áherslu á að mér finnst samvera systkina á sama leikskóla vera dýrmæt þegar henni verður við komið og mikilvæg upplifun barna á fyrsta skólastiginu þegar hún er möguleg. Ég vil bara hreinlega gefa boltann yfir til sveitarfélaganna í þessu máli. Hér er ekki um að ræða skyldu til handa sveitarfélögunum til þess að gera þetta með þessum hætti. Það er alfarið undir þeim komið.
Ég vil líka í þessu sambandi benda á, og það er mikilvægt, að ég veit til þess að það eru sveitarfélög hér á landi sem viðhafa systkinaforganginn í þeirri mynd sem þekktist áður fyrr í Reykjavík. Ég verð ekki sú manneskja sem segir til um að það sé bara hreint og klárt ólögmætt athæfi af hálfu sveitarfélagsins — alls ekki. Mér finnst í rauninni, bara sem lögfræðingi, hægt að færa rök fyrir því en ég hins vegar veit núna að þessi vafi hefur verið til staðar og er staðreynd í Reykjavíkurborg og hefur verið um árabil og nú þurfum við að hætta að láta kerfið vera bara til fyrir kerfið. Leiðréttum þessa vondu þróun og tökum af allan vafa um lögmæti þessa fyrirkomulags í eitt skipti fyrir öll.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Lögfesting þessarar heimildar verður til þess fallin að stuðla að vellíðan barnafjölskyldna þó svo að einhver breyting verði til í andstæðar áttir til hóps sem ég vil meina að sé fámennari en hinn. Ég ætla að vona að þetta hljóti ágætan jarðveg hér í þingsal og ég vænti þess að málið verði tekið til meðferðar hjá hv. allsherjar- og menntamálanefnd með fyrirvara um annað.