Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í kjölfar viðræðna Úkraínu og Bandaríkjanna í Sádi-Arabíu var af hálfu þeirra ríkja sett fram tilboð um 30 daga allsherjarvopnahlé ásamt því að stríðsfangar og aðrir fangar, þar með talin börn, fengju að snúa heim. Til að gera langa sögu stutta hafa Rússar hafnað þessu tilboði. Af fréttum af samtali Bandaríkjaforseta við Pútín og yfirlýsingum sem fylgt hafa í kjölfarið má sjá að sett hafi verið fram gagntilboð um vopnahlé þegar kemur að árásum á orkuinnviði. Í mörgum fjölmiðlum, líka hinum virtu erlendu, hefur þetta verið sett fram með þeim hætti að Rússar hafi ákveðið að hlífa orkuinnviðum Úkraínu í mánuð. Það er oftúlkun. Tillagan sem sett er fram er sett fram með gagnkvæmum hætti. Þar sem Úkraína hefur verið að hæfa olíuleiðslur og olíuflutningastöðvar í Rússlandi ber að skilja vopnahléstillöguna þannig að hætt verði að gera árásir á borgaralega innviði Úkraínu gegn því að Úkraína láti í friði olíuflutningastöðvar og aðra sambærilega innviði sem nýtast líka í hernaðarlegum tilgangi. Fyrirætlunum um gagnkvæm fangaskipti 175 fanga ber þó að fagna og ef það væri heildarmyndin mætti líta svo á að í heildarsamhengi hlutanna væri um tilraun til stiglækkunar, ekki stigmögnunar, að ræða. Orðum verða þó að fylgja gjörðir. Einum og hálfum tíma eftir að samtali leiðtoga Bandaríkjanna og Rússlands lauk hófust gríðarlega árásir á helstu borgir Úkraínu. Það sýnir ekki beint friðarvilja. Með sama hætti bar að skilja kröfur Rússa um að vopnahléstillögu fylgi stopp á frekari stuðning við Úkraínu. Það er einfaldlega krafa um uppgjöf. Á þá kröfu yrði aldrei hægt að fallast og því hljóta að Rússar að átta sig á. Krafan er því annaðhvort sett fram til að senda þau skilaboð að þeir hafi ekki raunverulegan áhuga á friði eða til að rugla almenning á Vesturlöndum í ríminu. Hlutverk Evrópu, þar á meðal Íslands, er að gefa ekkert eftir í stuðningi við Úkraínu og gefa ekkert eftir þegar kemur að refsiaðgerðum gagnvart Rússlandi. Það eru þau spil sem við getum teflt fram. Það eru þau spil sem styrkja samningsstöðu Úkraínu og þeim spilum eigum við ekki að spila frá okkur, sérstaklega þar sem fátt í aðgerðum mótaðilans bendir til raunverulegs friðarvilja.