156. löggjafarþing — 17. fundur,  19. mars 2025.

Störf þingsins.

[15:07]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ríkisstjórnin hefur lagt fram tillögu um svokallaða stöðugleikareglu. Þá eru nokkrar aðrar breytingar fyrirhugaðar á lögum um opinber fjármál. Ég velti því fyrir mér hvort ekki hefði verið rétt að greina áhrif og nytsemi laga um opinber fjármál áður en farið er í grundvallarbreytingar á lögum um afkomumarkmið og rekstur hins opinbera. Þá vekur athygli að grundvallarútgjaldaþættir eru undanskildir stöðugleikareglunni. Þannig má túlka hugtakið fjárfestingar mjög vítt. Það getur átt við bæði hefðbundna innviðauppbyggingu og óljósa þætti eins og fjárfestingar í mannauði eða öðrum ófjárhagslegum þáttum. Þá er ágætt að hafa í huga meiri háttar innviðaskuld þjóðarinnar. Ef tekist verður almennilega á við innviðaskuldina hlýtur það að hafa áhrif á aðrar forsendur fjármálastefnu og hagstjórnar. Þá er spurning hvort við séum að ganga of langt við að lögfesta hvernig staðið er að hagstjórn. Getum við ekki treyst hverri ríkisstjórn til að fylgja grunnreglum laga um opinber fjármál, svo sem varfærni, festu og sjálfbærni?

Frú forseti. Að lokum: Í fyrradag tilkynnti Þýskaland meiri háttar aukningu útgjalda til innviða og varnarmála. Þar er ekki verið að ræða stöðugleikareglu heldur hvernig megi víkja frá henni í ljósi nauðsynlegrar uppbyggingar innviða, auk varna landsins.