156. löggjafarþing — 17. fundur,  19. mars 2025.

Störf þingsins.

[15:09]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Ég tel að það sé óhætt að halda því fram að hér inni sé öllum umhugað um að málefnum barna með fjölþættan vanda verði komið í betra horf en ekkert gerist. Úrræðaleysið virðist algjört. Það er búið að stofna endalausar nefndir og ráð sem hafa skilað af sér. Nú er tími aðgerða. Við vitum hvað þarf að gera og ég vona að ríkisstjórn sem segist vera verkstjórn grípi til aðgerða strax. Við ætlumst til að lögregla, barnaverndarfulltrúar og aðrir sem vinna í kerfinu grípi inn í málefni barna og fjölskyldna þeirra þegar með þarf. En á sama tíma eru þessir aðilar settir í þá stöðu að hafa gott sem engin úrræði. Þessir aðilar þurfa að vera eins og fasteignasalar en þeir eru ekki að selja fasteignir heldur selja aðstæður barna, selja að þeirra barn sé í verri málum en önnur börn, í þeirri von að fá einhver úrræði fyrir sinn skjólstæðing þar sem úrræðin eru af svo skornum skammti. Þetta er löngu hætt að vera boðlegt fyrir alla. Á meðan ríkisstjórnin tekur ekki á þessu bráðaástandi þá bendi ég á að ef úrræði eru ekki handan við hornið þá erum við að senda fólk í liðskiptaaðgerðir erlendis með tilheyrandi kostnaði svo fólk fái viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Því langar mig að beina því til hæstv. ráðherra að setja strax í gang að skoða möguleika á að semja við erlenda meðferðaraðila á meðan við komum skikki á málin hér heima. Ég leyfi mér að efast um að þegar upp er staðið verði það dýrara fyrir kerfið heldur en núverandi plástrakerfi. Þannig væri hægt að veita þeim börnum sem eru á allra erfiðasta staðnum nauðsynlega heilbrigðisþjónustu og mannslífum gæti verið bjargað.