Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Við þingmenn Norðvesturkjördæmis hittum fulltrúa sveitarstjórnar Húnaþings vestra nú í hádeginu og við ræddum framtíð sveitarfélagsins og framtíðarsýn. Gagnvart sveitarfélögum víða um land eru verkefnin ólík. Þau verkefni sem eru fram undan hjá því sveitarfélagi eru m.a. vegamálin, sem við þekkjum að víða út um land eru ekki í nógu góðu ástandi. Þar treysta íbúar mjög mikið á að vegirnir séu þannig að hægt sé að fara langar leiðir með börn í skólaakstri. Sveitarfélagið er víðfeðmt og ferðaþjónusta hefur sem betur fer verið að styrkjast mjög mikið og mikil ásókn á staði sem eru orðnir frægir um víða veröld, eins og Hvítserkur og Kolugljúfur sem kemur sterkt þar inn. En til þess að mæta aukinni ferðaþjónustu, sem styrkir atvinnulíf á svæðinu, þá þarf að auka líka snjómokstur og hálkuvarnir svo að hægt sé að komast með góðu móti um sveitarfélagið og á þessa staði.
Það eru vissulega blikur á lofti varðandi atvinnumálin. Við þekkjum að það var verið að loka sláturhúsinu á Blönduósi og menn vita ekki um framtíð sláturhúss á Hvammstanga. Hvammstangi hefur verið öflugur kjarni í þessu sveitarfélagi og skiptir máli hver atvinnuþróun verður þar. Bjartsýni er hjá fulltrúum sveitarfélagsins um að leitað verði leiða til að styrkja atvinnulíf á þessu svæði. Stjórnvöld bera mikla ábyrgð á því sem að þeim snýr í þessum efnum. Það er verið að ræða sameiningu við önnur sveitarfélög og þá þurfa stjórnvöld að koma öflug að þeirri sameiningarvinnu, ef af henni verður, og sýna fram á hvað hægt sé að gera til að styrkja heilt yfir stærra sveitarfélag og nýta þjónustu í víðfeðmu sveitarfélagi. Þar tel ég að við eigum að leggja okkar af mörkum hér, þingmenn Alþingis.