Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í rúmlega áratug hefur geðheilbrigðisþjónusta barna og ungmenna og þjónusta við börn með fjölþættan vanda verið föst í einhvers konar reiptogi á milli ríkis og sveitarfélaga. Þessi tvö stjórnsýslustig hafa ekki verið ósammála um þörfina eða mikilvægi þess að við fjölgum úrræðum og styðjum betur við börn með fjölþættan vanda, heldur hefur umræðan verið föst í því hver á að greiða fyrir þjónustuna. Hver á að greiða fyrir þjónustuna við einhvern viðkvæmasta hóp samfélagsins? Um þetta hefur verið rifist í meira en áratug og á sama tíma hefur vandinn aukist og úrræðum fækkað. Börn með fjölþættan vanda eru fjölbreyttur hópur með miklar stuðningsþarfir. Stuðningurinn felst m.a. í meðferðarúrræðum og vistun utan heimilis til skemmri eða lengri tíma. En þessi úrræði eru kostnaðarsöm og uxu útgjöld sveitarfélaganna í málaflokknum um 500% á árunum 2005–2020. Á sama tíma hafa framlög til úrræða sem rekin eru af Barna- og fjölskyldustofu nánast staðið í stað.
Virðulegi forseti. Á fyrstu vikum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur hefur verið tekin ákvörðun um að höggva á þennan hnút með samkomulagi við sveitarfélögin um að ríkið taki yfir svokallaða þriðja stigs þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Í þessum töluðu orðum eru ráðherrar ríkisstjórnarinnar ásamt Heiðu Björgu Hilmisdóttur, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga, að undirrita samkomulag um verka- og ábyrgðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Með þessu samkomulagi, ásamt áætlun um að fjölga úrræðum, eru stigin stór skref til að taka þétt utan um börnin okkar og létta á fjölskyldum þeirra. Þetta samkomulag mun einnig létta á rekstri sveitarfélaga og veita þeim svigrúm til að efla fyrsta og annars stigs þjónustu við börn og grípa þannig fyrr inn í og fyrirbyggja að vandamál og vanlíðan aukist með tímanum. Svona látum við verkin tala.