jarðalög o.fl.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir andsvarið. Það gleður mig að heyra að hann telur þetta mál vera til bóta. Það var til þess sem refirnir voru skornir. Hvað varðar fyrri spurninguna þá er því til að svara að málið er unnið í nánu samráði við Bændasamtökin og þetta er ekki áhyggjuefni sem þau veltu upp þannig að það hefur ekki komið upp á borðið við vinnslu frumvarpsins að það gætu verið slíkar afleiðingar. Ef ástæða er til að skoða það nánar er bara ágætt að það hafi þá komið upp við þinglega meðferð málsins. Hvað varðar síðan þessar réttmætu áhyggjur sem hv. þingmaður hefur af þróun mála varðandi landbúnaðarjarðir þá er það, eins og ég sagði í upphafi, akkúrat stór hluti af þeirri heildarmynd sem verið er að teikna upp að vinna gegn því. Það er það sem verið er að vinna að í ráðuneytinu og ég bind miklar vonir við að það verði mál sem verði kynnt hér á haustdögum.