156. löggjafarþing — 17. fundur,  19. mars 2025.

jarðalög o.fl.

175. mál
[15:57]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra, ég held að það sé óhætt að segja atvinnuvegaráðherra, fyrir að koma fram með þetta mikilvæga mál sem ég get ekki betur séð en að sé til mikilla bóta. Við þurfum svo sem, eins og hefur komið fram í máli hæstv. ráðherra, að bíða spennt eftir haustinu til að taka stærri skref hvað þetta varðar en einhvers staðar þarf að byrja og hér eru tekin ákveðin skref sem eru mikilvæg.

Ég held að það sé ágætt í þessari umræðu að við veltum því fyrir okkur hvernig við sjáum fyrir okkur nýtingu á landi yfirhöfuð til framtíðar hvað það varðar hvernig við ætlum að nýta landbúnaðarland til þess að framleiða matvæli. Það er nú þannig að með breyttum búskaparháttum þá náttúrlega færist það mjög í vöxt að bændur séu að nýta leiguland hingað og þangað. Oft eru fjölmargir eigendur á bak við hverja einustu jörð sem verið er að leigja og þetta getur stundum verið vandamál þegar ósætti kemur upp innan fjölskyldunnar sem á jörðina. Ég held að við þekkjum öll til þess hvernig það getur nú orðið. Það er tekið ágætlega á því sem snýr að forkaupsrétti í frumvarpinu og það er sömuleiðis góð samantekt hérna og farið ágætlega yfir fjölda eigenda o.s.frv.

Ég verð að viðurkenna, frú forseti, að ég er ekki búinn að þaullesa frumvarpið en ég velti fyrir mér því sem snýr að hlutafélagsforminu. Nú eru jarðir töluvert í hlutafélagsformi. Ég get ekki séð að það sé komið inn á það hérna. Það má vera að það sé misskilningur hjá mér en ég sé ekki í fljótu bragði hvort tekið sé á því sem snýr að hlutafélagsforminu. Vissulega eru aðrar reglur þar á bak við en það er orðið þó nokkuð um það í dag að jarðir eru í eign hlutafélaga. Við þekkjum það norður í landi, t.d. með Reykjahlíð og fleiri gríðarstórar jarðir, og þar gilda náttúrlega bara hlutafélagalögin varðandi það hvernig farið er með eignarhluti o.s.frv. Ég held að það sé vert að taka það aðeins til skoðunar varðandi það mál sem á að koma hingað til okkar í haust, að velta því eignaformi upp því að mér finnst líklegt að í náinni framtíð komi til með að verða mun meira um hlutafélög, þ.e. hlutafélagsformið verður eignaraðili að landinu en ekki einstaklingar.

Sömuleiðis held ég að það verði áhugavert að takast aðeins á við og velta fyrir sér nýtingarskyldu á landi. Við þekkjum það t.d. frá Bretlandseyjum, þar er nýtingarskylda á landi og þar er svo sem mjög vel þekkt, það eru þessir „landlords“ og það eru bara ættir sem eiga gríðarlegt magn af landi, en það er skylda á eigendum landsins að láta nýta það. Að megninu til er það þannig með bændur á Bretlandseyjum, þó að þeir séu kannski með gríðarmikil og stór bú, að jarðirnar per se sem hver og einn bóndi þar á eru bara pínulitlar. Síðan eru menn að leigja land af þessum „landlords“, fyrirkomulag sem hefur viðgengist í margar aldir. Ég held að nýtingarskylda sé fyrirkomulag sem er mjög mikilvægt, sérstaklega í ljósi skipulags og það er náttúrlega á hendi sveitarfélaga hvernig farið verður með það. Það þarf að horfa sérstaklega til þess, held ég, hvernig við nálgumst það verkefni vegna þess að land er sennilega sú besta fjárfesting sem við eigum og við verðum að horfa líka til þess að við erum hér í augnablik, við erum gæslumenn landsins og okkur ber skylda til þess að skila því í góðu ástandi til þeirra sem koma til með að taka við. Ég held að þegar við horfum til nýtingarskyldu á landi þá myndi það ýta verulega undir nýliðun, það eru tækifæri í því, tækifæri fyrir nýliða, tækifæri fyrir ungu bændurnir sem eru að taka við. Þegar það er nýtingarskylda á landi er það sömuleiðis kvöð sem eigandi jarðarinnar verður að uppfylla og ef hann getur ekki uppfyllt kvöðina sjálfur þá þarf hann að fá einhvern annan til þess. Þar af leiðandi er leiguliðinn í þessu tilliti kannski ekki að borga himinháar fúlgur fyrir að nýta landið. Vissulega er mjög misjafnt hvernig farið er með leiguland og hvort það sé yfirhöfuð borguð einhver leiga o.s.frv., það er allur gangur á því, það fer bara eftir samsetningu þeirra samfélaga sem yrkja landið í hverju héraði fyrir sig. Ég þekki það t.d. í Eyjafirði að þar er mikil ásókn eftir landi. Síðan færum okkur yfir Vaðlaheiðina þar sem þetta bara gjörbreytist og þar er frekar verið að biðja menn um að slá tún og svoleiðis svo það fari ekki í sinu.

Við þurfum að reyna að taka utan um þetta vegna þess að það eru gríðarleg verðmæti sem felast í ræktunarlandi vítt og breitt um landið og það verður hvatning og áskorun fyrir okkur öll að viðhalda þeim verðmætum. Þess vegna er svo gleðilegt og mikilvægt að ráðherra skuli koma fram með þetta frumvarp hérna, taka þetta skref, til þess að ýta undir matvælaframleiðslu. Við getum síðan velt því fyrir okkur í framhaldinu varðandi þá agnúa sem snúa að forkaupsrétti og öðru. Það er bara úrlausnarefni, myndi ég segja. En fyrst og fremst, eins og ég skil málið og það blasir við mér, bóndanum í þessu tilliti, eru mikil tækifæri fyrir bændur þessa lands að það sé tekið fast á þessu. Ég hvet hæstv. ráðherra til þess að skoða nýtingarskyldu á landi því að þar felast ákveðin tækifæri fyrir framtíðina og ungu bændurna sem koma til með að erfa landið á eftir okkur.

Frú forseti. Ég held að ég hafi þetta ekki lengra en fagna þessu ágæta og góða máli og ég bíð spenntur eftir því sem kemur í haust.