156. löggjafarþing — 17. fundur,  19. mars 2025.

jarðalög o.fl.

175. mál
[16:10]
Horfa

Ágústa Ágústsdóttir (M):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra fyrir að koma með þetta mál inn í þingið þannig að það sé þó alla vega hægt að ræða það. En í fljótu bragði get ég ekki séð að þetta breyti nokkru, ég get ekki séð hvernig það kemur í veg fyrir að bújarðir leggist í eyði. Ég tek sem dæmi land sem er í sameign og þar voru áður, segjum, fjögur, fimm lögbýli og nú er aðeins eitt lögbýli til staðar. Allt hitt er farið í eyði og er sumarbústaðaland nánast og í raun er bara þannig. Þessi eini bóndi sem er eftir ákveður að selja, hann ætlar að hætta, vill eðlilega að einhver taki við. Þá kemur óviðkomandi aðili og segir: Ég vil kaupa af þér jörðina af því að mig langar að verða bóndi. Með þessu get ég ekki séð annað, ég bið þá bara um að ég sé leiðrétt, en að þá eigi sameigendur landsins, sem eru í raun ekkert annað en sumarbústaðaeigendur sem sjást ekki nema nokkra daga á ári, forkaupsrétt umfram þann sem vill taka við búskapnum.

Ég efast ekki um að margt sé gott í þessu máli hæstv. atvinnuvegaráðherra og gott að við getum tekið umræðuna og skipst á skoðunum. En í fljótu bragði sýnist mér það vera þannig að á meðan ríkið setur ekki kvaðir, eins og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson kom líka inn á áðan með nýtingarskyldu lands, á meðan ríkið setur engar kvaðir á jarðirnar um að það verði að nýta landið á einhvern hátt eða að menn hafi ákveðinn tíma eftir að þeir kaupa til að sýna fram á einhverja atvinnusköpun eða ræktun, þá mun þetta ekkert breytast. Þessi liður, þ.e. að þetta eigi að koma í veg fyrir eyðingu bújarða eða að þær leggist í eyði, er í raun og veru fyrir mér meira svona eins og lyktarlaust, hávært prump. Það heyra það allir en það hefur engin áhrif og gerir ekki neitt. Þetta kemur á engan hátt í veg fyrir eyðingu bújarða, ekki á nokkurn einasta hátt og getur frekar komið í veg fyrir að þeir sem vilja hefja búskap og taka við búskap geti það vegna þess að aðrir landeigendur sem vilja ekki nýta landið eiga forkaupsrétt á því.