156. löggjafarþing — 17. fundur,  19. mars 2025.

stimpilgjald.

14. mál
[16:57]
Horfa

Flm. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sínar góðu spurningar. Já, ég er alveg jafn hissa að þetta hafi ekki komist í gegn. En eins og það er hér í þinginu þá þarf að komast á heildarsamkomulag um hvernig við forgangsröðum fjármagni ríkisins og þar sem þetta er bara skattur er þetta nú að skila einhverjum tekjum. Það hefur ekki tekist í því ríkisstjórnarsamstarfi sem við höfum verið í að ná sátt um þetta. Ég hef sagt það að sáttin um hvernig á að ráðstafa fjármunum til húsnæðismála, sem hefur verið gert gríðarlega mikið af á undanförnum árum í okkar stjórnartíð — fókusinn hefur komið eftir viðræður við aðila vinnumarkaðarins til að ná kjarasamningum sem er mjög efnahagslega mikilvægt. Þar höfum við frekar verið að nýta tímann og ráðstafa fjármunum í almenna íbúðakerfið. Það er búið að setja lög um hlutdeildarlán, það voru stofnframlög og fleira sem fengu bara þennan forgang. Því var ég nú að benda á þetta, það var ekkert sem bannaði þinginu að klára þetta þó að það hefði ekki verið í kjarasamningunum, en það hefði þurft að ná sátt um það á milli þriggja flokka í undanförnum tveimur ríkisstjórnum og okkur Sjálfstæðismönnum tókst það ekki. Af hverju gengum við ekki lengra? Þar sem þessi tregða hefur verið þá taldi ég það líklegra til árangurs að setja fókus á íbúðirnar og lögbýlin til að byrja með. En eins og ég kom inn á í ræðu minni er ég hlynntur því að fella allar álögur sem hægt er úr gildi og var eiginlega að hvetja hæstv. ríkisstjórn til góðra verka í því, sérstaklega hæstv. fjármálaráðherra og flokkur hans hefur einmitt reynt að trompa mig. Þannig að ég skildi það kannski bara svolítið eftir fyrir Viðreisn að eigna sér málið með því að ganga lengra.