stimpilgjald.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt svar. Ég ætla aðeins, með leyfi forseta, að lesa upp úr greinargerð með þessu frumvarpi, neðst á fyrstu blaðsíðunni: „… að stimpilgjald hafi skaðlegri áhrif á velferð en aðrar tegundir skattheimtu.“ Hvaðan kemur þetta? Ég hélt að skattbyrði hefði svona — og að þetta sé bara svona venjulegur skattur sem valdi bara þessum venjulegu kvölum hjá greiðendum eins og hver annar skattur. Ég spyr: Hvaðan kemur þetta, að þetta sé eitthvað sérstakt umfram aðra skatta, hafi einhver skaðlegri áhrif á velferð heldur en aðrar tegundir skatta? Ég hef alltaf staðið í þeirri trú að þetta væri nú svona hálfofbeldisfull leið ríkisins til að afla sér tekna hvað sem gjaldið eða skatturinn heitir. Ég var lengi innheimtumaður ríkissjóðs og eitt af því sem ég var að innheimta voru stimpilgjöldin. Mér reiknaðist svo til að stimpilgjöldin fjármögnuðu svona u.þ.b. kostnaðinn við þinglýsinguna og vinnuna við það. Þannig að ég spyr hv. þingmann einnig að þessu: Hefur kostnaðurinn eða tekjutapið fyrir ríkissjóð, ef þetta verður að lögum, verið reiknað út? Hverju tapar ríkissjóður ef þetta verður að lögum? Ég er einnig hissa á þessu orðalagi í framhaldinu í frumvarpinu, með leyfi forseta: „Af framangreindu má ætla að afnám stimpilgjalds af fasteignaviðskiptum muni auðvelda verðmyndun á húsnæðismarkaði með tilheyrandi aukningu á framboði …“ Er hv. þingmaður viss um þetta?