rannsóknir á jarðlögum og hafsbotni á fyrirhugaðri gangaleið milli lands og Vestmannaeyja.
Virðulegur forseti. Hér er á ferðinni góð og þörf þingsályktunartillaga. Þegar hv. þm. Árni heitinn Johnsen kom fyrst með hugmyndir að göngum til Vestmannaeyja, og var ötull talsmaður þeirrar hugmyndar alla tíð, brostu margir út í annað þegar þessi umræða kom og fannst þetta svolítið fjarlæg draumsýn hjá hv. þingmanni. Á 135. löggjafarþingi, 12. febrúar 2008, sagði hv. þm. Árni Johnsen með leyfi forseta:
„Koma dagar, koma ráð og þeir sem hafa unnið mest í þessu vita að með hverjum deginum styttist í að göng komi milli lands og Eyja. En næsta skref í þessu, samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar, er Landeyjahöfn með nýju skipi og það er verulega mikil bót miðað við það sem nú er, 20 mínútna siglingaleið.“
Þetta var, virðulegur forseti, fyrir 17 árum síðan og nú erum við að ræða þingsályktunartillögu um að það verði settir fjármunir, nokkrir tugir milljóna, í fyrsta fasa í tilraunaborunum á jarðlögum og hvort fýsilegt sé að fara í jarðgöng til Vestmannaeyja.
Í jómfrúrræðu minni viðraði ég hugmyndir um stofnun jarðgangafélag Íslands, sem er að færeyskri fyrirmynd. Færeyingar, eins og hv. þm. Vilhjálmur Árnason kom inn á áðan, eru búnir að tengja saman nánast allar stærstu eyjarnar fyrir utan Suðurey. 92% Færeyinga geta núna keyrt á milli eyjanna og eru tengdir með jarðgöngum, neðansjávargöngum. Nýjustu göngin, til Suðureyjar, sem eru núna á teikniborðinu hjá Færeyingum verða sirka 24–25 km löng. Þau eru á teikniborðinu og þau eru að fara af stað. Þetta eru stórhuga vinir okkar, Færeyingar, að gera og við erum að velta fyrir okkur hvort við eigum að setja nokkra tugi milljóna í að kanna jarðlög og hvort við eigum í rauninni að halda áfram með drauma Árna Johnsens um að koma göngum til Eyja. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við setjum fé í þessar rannsóknir til að fá úr því skorið hvort þetta er möguleiki og hvort þetta er fýsilegt, að fara í að skoða jarðgöng til Vestmannaeyja en við gerum það ekki nema með rannsóknum fyrst alveg eins og í öllum öðrum jarðgöngum. Ég held að Vestmannaeyingar og atvinnulífið í Vestmannaeyjum hafi í gegnum tíðina lagt nóg til íslensks samfélags og leggi nóg til íslensks samfélags til að það hljóti að vera innstæða fyrir því að fara í þessar rannsóknir fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum. Þar er gríðarlega mikil uppbygging núna og spennandi tækifæri í gangi sem kalla akkúrat á að við þingmenn séum opnir fyrir því að skoða það að fara í þessar rannsóknir og opnir fyrir því að skoða þann möguleika hvort það sé mögulegt að fara í jarðgöng til Vestmannaeyja.