afstaða Flokks fólksins til sölu Íslandsbanka.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið þótt það hafi nú vart varpað ljósi á þau sinnaskipti sem átt hafa sér stað hjá formanni Flokks fólksins. En hv. þm. Sigurjón Þórðarson stóð vaktina í umræðunni um sölu á Íslandsbanka fyrir hönd Flokks fólksins í vikunni. Hann mætti þó reyndar ekki til leiks fyrr en hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir kallaði eftir þátttöku Flokks fólksins í umræðunni og þau hafa hingað til ekki talið eftir sér að ræða sölu á Íslandsbanka. En af orðum talsmanns Flokks fólksins mátti þó greina að Landsbankinn ætti svo að verða samfélagsbanki, eitthvað sem hefur verið í stefnuyfirlýsingu Flokks fólksins varðandi Landsbanka Íslands og flokkurinn hefur lengi talað fyrir. Það er því ekki hægt annað en að spyrja hæstv. ráðherra hvort þetta sé einmitt það sem Flokkur fólksins fékk í gegn í stjórnarsamstarfinu, þ.e. að standa ekki í vegi fyrir sölu á Íslandsbanka (Forseti hringir.) gegn því að Landsbankinn yrði gerður að samfélagsbanka.