156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

[10:41]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir frábæra fyrirspurn, að gefa mér tækifæri á því einmitt að leiða fram hvað er átt við í greinargerðinni með því, eins og stendur, að það sé ekki gert ráð fyrir þessu. Það er nefnilega ekki gert ráð fyrir því í greinargerð af því að við höfum ekki nákvæma útlistun á því hver kostnaðurinn verður við löggildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks fyrr en hann er kominn til framkvæmda. Við gerum okkur ekki grein fyrir umfanginu en við vitum að fráfarandi ríkisstjórn var búin að undirbúa það vel að við gætum gengið í það að löggilda samninginn og taldi sig vera búna að girða fyrir flestar þær hindranir sem hugsanlega væru ófyrirséðar. Það er í rauninni hluti af því sem við höfum tekið í fangið. Þannig að eitt af því góða sem hafði verið undirbúið ágætlega en verður í raun og veru — alveg eins og ef eitthvað verður um málsóknir eða eitthvað vegna þess að við erum ekki að sinna þeim réttindum sem samningurinn veitir fötluðu fólki þá náttúrlega mun ríkið þurfa að bera kostnað af því.

Við erum líka að löggilda þarna viðauka við samninginn sem gæti hugsanlega verið kostnaðarsamasti hluti samningsins. En allt á þetta eftir að koma í ljós og við munum fylgja því eftir, í rauninni hvað sem það kostar. Það má tala um það hvernig sem er og það má kalla það hvað sem er en ég óska okkur öllum til hamingju með þann stóra áfanga sem við erum að fara að ná núna þegar ég mæli í 1. umræðu fyrir máli um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og ég veit að hver og einn einasti þingmaður hér inni mun greiða því atkvæði sitt af öllu hjarta.