156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

lokun Janusar endurhæfingar.

[10:55]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en það liggur fyrir að samningur ríkisins við Janus endurhæfingu rennur út 1. júní næstkomandi. Aftur á móti liggur ekki fyrir hvernig þjónusta þeirra sem hafa verið í endurhæfingu hjá Janusi verði tryggð þótt svo sé fullyrt, frú forseti. Það er auðvitað gott mál en hvernig verður þjónustan tryggð? Það eina sem liggur fyrir er að til stendur að ráðast í vinnu við að leita leiða á næstu mánuðum. Núna er mars og 1. júní er bara eftir nokkra mánuði.

Frú forseti. Fyrirsjáanleiki og samfella í þjónustu er lágmarkskrafa. Því spyr ég hæstv. ráðherra hvort hún sé tilbúin að koma hér upp í pontu og ábyrgjast það hér og nú að enginn muni falla milli skips og bryggju við þær breytingar sem yfirvofandi eru á endurhæfingu ungs fólks.