lokun Janusar endurhæfingar .
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurn. Ég ítreka að það mun verða á borði heilbrigðisráðherra að fylgja því eftir með VIRK Starfsendurhæfingarsjóði. Ég veit að þegar er verið að leita leiða, að þegar er verið að leita lausna. Það er ýmislegt sem við höfum verið með og sviðsmyndir sem við höfum verið að leggja á borðið, og ég hef fengið að segja mínar skoðanir hvað það varðar og koma með mínar hugmyndir að mjög svo góðum leiðum til þess að taka utan um þetta unga fólk. Ég nefni sérstaklega, bara svo ég segi það nú, það er auðvitað algjört leyndarmál og enginn má vita af því, þannig að ég treysti því að hv. þingmaður hafi það bara hjá sér, að ég hef mjög mikinn augastað á Reykjalundi og því góða starfi sem þar hefur verið. Þar kynntist ég því einmitt þegar þeir voru með ungt fólk í starfsendurhæfingu sem þurfti á þessari þjónustu og þessari hjálp að halda, það var mjög ánægjulegt og bara yndislegt í alla staði. Ég er að vona að okkur auðnist sú gifta að geta einmitt endurvakið það og komið þannig til móts við þetta unga fólk sem þarf á okkur að halda. Að öðrum kosti mun ég náttúrlega ekki leggja stein í götu eins eða neins sem er að finna lausnir (Forseti hringir.) þó að það séu ekki akkúrat mínar hugmyndir. Ég mun leggja mig alla fram og ég heiti því að gera mitt besta. (Forseti hringir.) En ég get náttúrlega ekki tekið fram fyrir hendurnar á öðrum og farið út fyrir mitt valdsvið að einu eða neinu leyti.