Einmanaleiki og einangrun eldra fólks.
Virðulegi forseti. Nýlegar rannsóknir sýna að í alþjóðlegum samanburði er lítill einmanaleiki meðal eldra fólks á Íslandi. Hins vegar má gera ráð fyrir að einmanaleiki og einangrun eldra fólks hér á landi sé meiri en gögn gefa til kynna. Margt eldra fólk sem upplifir einsemd og er einangrað kýs að segja ekki frá því. Elsta kynslóðin hefur oft verið alin upp við að harka af sér, vera ekki að kvarta að óþörfu og forðast með því móti að vera byrði á öðrum. Einmanaleiki og einsemd getur verið áberandi, bæði hjá þeim sem búa í eigin húsnæði og hjá þeim sem dvelja á hjúkrunarheimilum. Margt eldra fólk sem finnur sig einmana, óháð aðstæðum og umhverfi, þráir persónulega nærveru og sárlangar að eiga samtöl við aðra. Einstæðingar eða þeir sem ekki fá heimsóknir eru líklegri til að finna fyrir einmanaleika en þeir sem njóta stuðnings fjölskyldu og vina. Þetta á einnig við um íbúa hjúkrunarheimila þrátt fyrir daglega umgengni við heimilisfólk og starfsfólk.
Mannekla er langvarandi vandamál í aðhlynningarstörfum og eru hjúkrunarheimili og heimaþjónustan ekki undanskilin í þeim efnum. Starfsfólk hjúkrunarheimila er oft undir miklu álagi, t.d. vegna undirmönnunar, og getur því ekki veitt þann félagslega stuðning sem heimilisfólk þráir. Starfsmenn hafa oft aðeins fáeinar mínútur aflögu til að eiga gæðastund með vistmönnum. Að auki eru aðstæður nú víða með því móti að meiri hluti starfsfólks hjúkrunarheimila og þeirra sem sinna aðhlynningarstörfum hér á landi hefur takmarkaða íslenskukunnáttu, sem getur aukið hindranir í samskiptum.
Velferðartækni, eins og skjáheimsóknir, hefur rutt sér til rúms á síðustu árum, náð góðum árangri og hefur sannarlega sína kosti. Hins vegar eru það persónuleg samskipti, augliti til auglitis, sem skipta mestu máli í baráttunni gegn einmanaleika. Þá er ekki allt eldra fólk fært um að nýta sér velferðartækni. Þessi aldurshópur er oft minnst tæknivæddi hópurinn samanborið við aðra aldurshópa. Það er nándin, tengslin og snertingin sem skiptir máli en umfram allt er það samtalið sem er besta forvörnin gegn einmanaleika og einangrun.
Það vantar sárlega fólk, starfsfólk eða sjálfboðaliða, sem brennur fyrir að létta eldra fólki lundina og eiga með því gæðastund. Það getur skipt sköpum fyrir eldra fólk að hafa einhvern til að tala við, einhvern sem hlustar. Það er ekki nóg að auka eingöngu samskipti í gegnum skjá heldur þarf að standa vörð um samveru og nálægð. Það sem skiptir mestu máli er nándin, tengsl og snerting og umfram allt er það samtalið sem er besta forvörnin gegn einmanaleika og einangrun.
Spurningin til hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra er á þá leið: Mun ráðherra leggja áherslu á að finna leiðir til að draga úr einmanaleika og einangrun eldra fólks, bæði í heimahúsum og á hjúkrunarheimilum?