156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

Einmanaleiki og einangrun eldra fólks.

[11:08]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda, hv. þm. Kolbrúnu Baldursdóttur, fyrir að koma með sérstaka umræðu um afar mikilvægt málefni sem á einhverjum tímapunkti ævinnar mun snerta okkur öll. Einmanaleiki, óöryggi og sá ótti sem oft fylgir því að eldast hefur mótað mig og baráttu mína fyrir bættri þjónustu og umönnun fyrir pabba og mömmu, fyrir afa og ömmu. Það er sárara en tárum taki að vita til þess að einhver skuli vera svo félagslega einangraður að það verði jafnvel enginn þess var þegar viðkomandi deyr einn heima. Slíkt á aldrei að gerast í samfélagi sem okkar, samfélagi sem á að byggja á nánd og kærleika. Sem ráðherra félags- og öldrunarmála þá er það eitt af mínum hjartans málum að vinna gegn þeirri þöglu ógn sem einmanaleikinn er.

Ég er stolt af því að geta upplýst um það að næsta fimmtudag mun ég hrinda af stað metnaðarfullri herferð gegn félagslegri einangrun. Markmiðið er að virkja samfélagið, opna augu fólks fyrir því að hugsanlega sé einhver einangraður og einmana í næsta nágrenni sem við höfum ekki áttað okkur á að við getum raunverulega hjálpað og gefið hlýju okkar og vinskap. Við getum hjálpað með því að láta okkur ekki standa á sama heldur mæta viðkomandi þar sem hann er með vinskap og virðingu.

Við höfum þegar haldið hvetjandi og uppbyggilega fræðslufundi í yfir 25 sveitarfélögum um land allt og munum halda áfram hringferð okkar um landið þar til við höfum náð til þeirra allra. Við munum birta kynningarefni víða á vefmiðlum, samfélagsmiðlum, flettiskiltum og strætóskýlum. Þá munum við gefa út bæklinga um málefnið á íslensku, ensku og pólsku.

Í kjölfar Covid-19 heimsfaraldursins, sem sýndi okkur svo greinilega hversu skelfileg félagsleg einangrun getur verið, voru veittir styrkir til valinna sveitarfélaga til að ráða tengiráðgjafa en þeirra hlutverk er að draga úr félagslegri einangrun og einmanaleika viðkvæmra hópa. Styrkurinn var veittur til tveggja ára og er nú á seinna árinu. Ég get upplýst að félags- og húsnæðismálaráðuneytið vinnur nú að því að framlengja þessar mikilvægu ráðningar.

Ég ætla að segja ykkur hérna í örstuttu máli hvert hlutverk tengiráðgjafanna okkar er, hversu margþætt, hversu krefjandi og hversu gott. Þeir vinna gegn einmanaleika og félagslegri einangrun með því að vera í góðum tengslum við staðbundna aðila til að nýta sem best þær bjargir sem fyrir eru í samfélaginu. Þeir byggja brýr á milli ólíkra þjónustustofnana og stuðla að samvinnu í baráttunni gegn félagslegri einangrun. Þeir eru í stöðugu samtali við alla þjónustuaðila og passa eftir fremstu getu að enginn detti á milli skips og bryggju. Þeir nálgast þá sem eru félagslega einangraðir eða í hættu á að einangrast, m.a. með símtölum og heimsóknum. Tengiráðgjafarnir hafa yfirsýn yfir bjargir nærsamfélagsins, sérstaklega þau úrræði sem eru líkleg til að auka félagsleg samskipti viðkvæmra hópa. Tengiráðgjafarnir okkar taka þátt í reglulegum viðræðum milli þjónustuaðila í nærsamfélaginu og hliðverði úrræða. Á flestum stöðum felur það í sér samtal á milli félagsþjónustu og heilsugæslu, félagasamtaka, trúarhópa, sjálfboðaliðasamtaka o.s.frv. Sérstök áhersla er lögð á að finna út hvernig nýta megi úrræði betur til að tryggja árangur fyrir þá sem eru í viðkvæmri stöðu.

Ég vil líka nefna það að við erum að efla dagdvölina. Við ætlum að efla dagþjálfun, við erum að taka utan um fólkið okkar sem er í rauninni eitt heima og við erum að reyna að aðstoða við að vera heima sem lengst. Við viljum efla dagdvölina af því að hún er þessu fólki algerlega ómetanleg. Ég er einstaklega ánægð með að geta tilkynnt það að á næstu vikum þá ráðum við til starfa sérstakan hagsmunafulltrúa eldra fólks sem mun m.a. í nánu samstarfi við sveitarfélög og tengiráðgjafana kortleggja og berjast gegn félagslegri einangrun eldra fólks.

Það er margt fram undan varðandi bætta þjónustu við eldra fólk en ég vil deila með ykkur nokkrum verkefnum sem þegar eru í fullum gangi. Við höfum styrkt áhugaverðan sjónvarpsþátt um einmanaleika sem mun birtast á RÚV annaðhvort núna í vor eða næsta haust. Við höfum gert styrktarsamning við Landssamband eldri borgara fyrir árið 2025 um frábært heilsueflingarverkefni sem ber nafnið Bjartur lífsstíll. Kvenfélagasambandið hefur fengið styrk fyrir viku einmanaleikans í september 2025 og síðast en ekki síst vil ég nefna hin frábæru vinaverkefni Rauða krossins á Íslandi með heimsóknarvinum, gönguvinum, símavinum og vinahópum, verkefni sem hafa sannað gildi sitt margoft. Saman getum við gert kraftaverk í baráttunni gegn einmanaleika. Það er undir okkur öllum komið að byggja samfélag þar sem enginn er skilinn út undan og þarf að vera einn.