Einmanaleiki og einangrun eldra fólks.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur fyrir að taka upp þessa sérstöku umræðu um einmanaleika og einangrun eldra fólks. Eins og fram hefur komið í fyrri ræðum er einmanaleiki og einangrun eldra fólks vaxandi áskorun sem hægt er að horfa á sem heilsufarslega, félagslega og samfélagslega. Okkur ber að taka þessa áskorun alvarlega á sama tíma og við viljum ekki sjúkdómsvæða það að eldast. Það er einfaldlega þannig að þegar fólk hættir að vinna breytist daglegt líf og tengslanetið getur orðið veikara. Fyrir marga er vinnan nefnilega ekki bara tekjulind heldur einnig félagslegur vettvangur og hluti af sjálfsmyndinni. Það getur oft verið erfitt fyrir einstakling sem skilgreinir sig út frá starfinu sínu að vera ekki lengur slökkviliðsmaður, kennari eða alþingismaður. Hvað er ég þá? Það er því mikilvægt að í gegnum allt lífið séum við öll virk í félagsstarfi, ræktum fjölskyldu og vini og mótum sterka sjálfsmynd sem byggist á fleiri þáttum en einfaldlega bara hvað við vinnum við. Líkamleg heilsa er annar verndandi þáttur þegar kemur að sjálfsmynd, heilsu og sjálfstæði á efri árum. Því er til mikils að vinna fyrir okkur öll sem einstaklinga og samfélag að við séum á hreyfingu alla ævi. Þessir þættir eru ekki aðeins lykilþættir til að stuðla að heilsuhraustum einstaklingum heldur einnig til að fyrirbyggja stuðningsþarfir á efri árum. Það er því þjóðhagslega hagkvæmt að ríki og sveitarfélög taki höndum saman til að stuðla að heilsueflingu og félagslegri virkni landsmanna alla ævi. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur sýnt það í verki að hún setur málefni eldri borgara í forgang með stefnu um að ráðast í þjóðarátak í umönnun eldri borgara, hraða uppbyggingu hjúkrunarrýma, hækka frítekjumark almannatrygginga og að örorku- og ellilífeyrir fylgi hækkun launavísitölu, og allt þetta til viðbótar við þær aðgerðir sem hæstv. ráðherra fór yfir hér í ræðu. Þessar aðgerðir eiga það allar sameiginlegt að létta líf eldra fólks og gefa því aukinn sveigjanleika til að gera það sem skiptir mestu máli, að rækta félagsleg tengsl og eigin heilsu.