156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

Einmanaleiki og einangrun eldra fólks.

[11:18]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. málshefjanda, Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur, fyrir að opna þessa umræðu hér í dag. Einmanaleiki er auðvitað eitthvað sem við kynnumst flest í einhverjum mæli á einhverjum tímapunkti á lífsleiðinni. Það var komið inn á það í upphafsræðu hv. þingmanns að eldri kynslóðir kveinkuðu sér síður, þær væru ekki gjarnar á að láta vita af vandamálum sínum og upplifðu að þá væri verið að bæta í þá tilfinningu að vera byrði á samfélaginu og umhverfinu. Ég held að þetta sé hárrétt athugað hjá hv. þingmanni. En þá verðum við líka að spyrja okkur: Hvað erum við sem stýrum því hvernig haldið er á ákvörðunum um uppbyggingu á þjónustu ýmiss konar, dvalarheimilum, ýmiss konar búsetukjörnum, stuðningi sem veittur er af hendi hins opinbera, hvaða skilaboð erum við að senda þessum hópum þegar hringlað er með áform, uppbyggingu ekki sinnt eins og um er talað og þar fram eftir götunum? Ég held að þetta sé atriði sem við þurfum sérstaklega að taka til skoðunar í þessu samhengi. Hvað erum við sem hér á Alþingi störfum, og sveitarstjórnir landsins sömuleiðis, hvaða skilaboð erum við að senda til að ýta undir þetta? Þetta hóstakast mitt stytti nú dálítið tíma minn en ég ætla að koma í seinni ræðu minni inn á það er varðar virkni fólks og tækifæri þess til að sinna störfum lengur á vinnumarkaði, bara í ljósi þess hversu mikilvægt atriði það er hvað hinn félagslega þátt allra varðar.