Einmanaleiki og einangrun eldra fólks.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur fyrir að bjóða upp á þessa mikilvægu umræðu hér í dag og sömuleiðis hæstv. ráðherra fyrir að taka þátt. Fyrir tíu árum síðan heimsótti ég hvert einasta hjúkrunarheimili á Íslandi á 30 dögum, sem þá voru hátt í 70 talsins, í þeim tilgangi að halda tónleika og syngja og spila með íbúum. Þessi reynsla gaf mér góðan samanburð og ég skynjaði það svo vel hvernig félagslegar aðstæður skipta máli. Ég hugsaði stundum með mér eftir heimsóknirnar: Hér myndi ég vilja eiga heima þegar ég verð orðin gömul. Og oftar en ekki var það eftir heimsókn á heimili þar sem starfsfólkið var í eigin fötum, ekki einkennisfatnaði, stundum voru dýr á þessum stöðum og sums staðar jafnvel boðið upp á sérrístaup yfir söngnum. Ég áttaði mig á því hvað það var sem einkenndi þessi heimili, þar sem stemningin var á einhvern hátt léttari og mannlegri, þegar ég átti samtal við starfsmann sem sagði okkur frá Eden-hugmyndafræðinni. Hún gengur út á það að breyta stofnanamenningu hjúkrunarheimila í heimili sem iðar af lífi, innan um blóm og plöntur, börn og dýr, með áherslu á að vinna gegn einmanaleika, vanmætti og leiða, með nánd, samveru, stuðningi og gleði, ekki bara með stuðningi við grunnþarfir heldur einnig með innihaldsríkum samskiptum og gengið er út frá því að hver og ein manneskja sé sérstök og skipti máli.
Í samantektargreiningu Holt-Lunstad o.fl. frá árinu 2010, sem náði til 300.000 þátttakenda, kom í ljós að skortur á félagslegum tengslum eykur líkur á dauða um 50% og að félagsleg tengsl eru ein mikilvægasta verndandi breytan fyrir heilsu. Fleiri rannsóknir benda til þess að félagslega einangrað fólk sé líklegra til að þróa með sér líkamlega og andlega sjúkdóma. Á Íslandi eru ekki til neinar nákvæmar tölur um hversu oft fólk deyr einmana dauða. Tilfellin eru ekki skráð sérstaklega í dánarmeinaskrá eins og gert er víða annars staðar. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið lét hins vegar greina líðan eldra fólks, bæði af íslenskum og erlendum uppruna, árið 2023. Þar kom í ljós að 17% fólks af íslenskum uppruna var nokkuð eða talsvert einmana og 31% sífellt stækkandi hóps innflytjenda.
Það þarf samhent átak samfélagsins í heild til þess að vinna á móti félagslegri einangrun eldra fólks. Sá hópur er auðvitað fjölbreyttur og með ólíkar þarfir (Forseti hringir.) en mannleg tengsl eru grundvallaratriði fyrir vellíðan fólks. Á þessu ferðalagi mínu fyrir tíu árum sá ég svo vel hvað tónlist er öflugt tæki í þessum efnum, enda fjölmargar rannsóknir sem sýna fram á gildi tónlistarstarfs í félagslegum tilgangi. (Forseti hringir.) Nú þýðir hins vegar ekkert að telja bara í harmonikkulögin því að Bítlakynslóðin er mætt til leiks (Forseti hringir.) í sístækkandi hóp eldra fólks.