Einmanaleiki og einangrun eldra fólks.
Frú forseti. Ég vona að mér farnist betur núna en áðan. En það er margt gott komið fram í umræðunni hingað til. Mig langar að koma inn á seinni punktinn sem ég ætlaði að koma inn á í fyrri ræðu minni sem snýr að svigrúmi fólks til að vera áfram virkt á vinnumarkaði, þ.e. þeirra sem vilja og geta. Auðvitað á þetta ekki við um alla en það er engu að síður þannig, eins og hefur komið fram í fyrri ræðum, að félagslegi þáttur atvinnuþátttöku verður ekki ofmetinn. Ég held að við ættum að leita leiða hér inni til þess að styðja við að fólk eigi auðveldara með að nýta starfskrafta sína áfram. Það er bæði heilbrigðismál í raun fyrir þá einstaklinga sem það geta gert og síðan dregur það úr ýmiss konar þjónustuþörf, lengir í þeim tíma sem aukning verður þar á ef vel tekst til og þar fram eftir götunum. Það eru auðvitað leiðir sem við höfum til að gera þetta, bæði með breytingum á frítekjumörkum og meðhöndlun hinna ýmsu kerfa á tekjum sem einstaklingar vinna sér inn eftir að tilteknum aldri er náð. Þetta held ég að hafi verið með mismunandi hætti á stefnuskrá hinna ýmsu flokka í gegnum tíðina. Við í Miðflokknum höfðum svona töluvert miklar skoðanir á því með hvaða hætti ætti að útfæra þetta, bæði í síðustu kosningum og kosningunum þar á undan, til að auka þetta svigrúm og frelsi fólks sem vill og getur. Því að þó ekki væri nema það að við auðvelduðum þeim hópum að vera virkir á vinnumarkaði og njóta þess sem það skilar, þá eru önnur verkefni sem minnka sem því nemur. Önnur verkefni sem við þá getum sett meiri orku í að reyna að sinna og vinna úr og njótum þess þá bæði að hafa öflugt fólk með mikla þekkingu og reynslu á vinnumarkaði lengur en annars væri, fólkinu líður betur og þau verkefni sem við okkur blasa verða minni að umfangi.