Einmanaleiki og einangrun eldra fólks.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur fyrir að kalla til þessarar umræðu og þakka þingmönnum og hæstv. ráðherra fyrir að taka þátt í henni. Einmanaleiki og félagsleg einangrun er ógn við lýðheilsu eldra fólks. Mikilvægi samveru verður aldrei ofmetið og það er okkar allra að ýta undir hana. Einmanaleiki getur falið í sér skort á félagslegum samskiptum, að þau séu ekki regluleg og jafnvel fátíð. Það getur svo leitt til slæmrar andlegrar heilsu. Það eru sem betur fer leiðir færar til að bæta andlega heilsu og hægt að koma í veg fyrir félagslega einangrun hjá öldruðum og mikilvægt að við styðjum þau til að halda góðri líðan og þátttöku í samfélaginu því félagsleg þátttaka hefur jákvæð áhrif á sjálfsmynd og vellíðan aldraðra. Starf félagasamtaka, tómstundir og skipulagðir viðburðir sem taka mið af þörfum eldri borgara gefa þeim tækifæri til að vera í samskiptum við aðra og upplifa samfélagsleg tengsl. Þar má nefna hið mikilvæga starf sem sjálfboðaliðar sinna, eins og heimsóknavinir Rauða krossins, félagsstarf eldri borgara og fjöldi annarra sambærilegra verkefna. Þetta er ómetanlegt framlag sem veitir fólki félagsleg tengsl, hlýju og stuðning. Regluleg hreyfing eins og gönguferðir, léttar æfingar eða sund hefur ekki aðeins góð áhrif á líkamlega heilsu heldur bætir einnig andlega líðan og er auðvelt að sinna m.a. í skipulögðu starfi eldri borgara. Líkamleg virkni dregur úr streitu og stuðlar að bættum svefni sem hefur jákvæð áhrif á andlega heilsu.
Forseti. Einmanaleikinn getur komið upp hjá þeim sem finna fyrir aftengingu frá samfélaginu og þar með skorti á tilgangi í lífinu, jafnvel hjá þeim sem njóta reglulegra og innihaldsríkra samskipta. Að eldast ætti ekki að þýða að fjarlægjast samfélagið eða missa rödd sína. Þvert á móti eigum við að gera allt til að styðja eldra fólk til að taka þátt og vera virkt í samfélaginu, finna ný verkefni og skapa og miðla þannig að þau geti skapað og miðlað af reynslu sinni. Það á að vera gott að eldast.