156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

Einmanaleiki og einangrun eldra fólks.

[11:37]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég vil bara að segja: Takk fyrir ykkur og hjartans þakkir fyrir að taka svona fallega utan um þetta hjartans mál, greinilega hjartans mál okkar allra. Á Íslandi á að vera gott að eldast og á Íslandi mun verða gott að eldast. Ég tek heils hugar undir það sem hér hefur komið fram hvað lýtur að virkni, hvað lýtur að því að vera ekki að hamla fullorðnu fólki að halda áfram að vinna og taka þátt. Ég tek heils hugar undir það að söngurinn, hann gleður, hann bætir, hann kætir.

En mig langar í lokin til að nefna að ég á foreldra á lífi. Ég er í rauninni ótrúlega heppin á mínum aldri að eiga bæði móður sem býr ein heima og eiga föður sem er á hjúkrunarheimili. Það er sárara en tárum taki að heimsækja pabba gamla, það er sárara en tárum taki að sjá hann sitja einan úti í horni afskiptalausan í hvert einasta skipti, þá sjaldan að ég hef tíma til að koma í heimsókn. Það er líka mjög sorglegt að mamma skuli í rauninni, eins og hún er hress og kát, vera farin að hugsa sér til hreyfings vegna þess að hún treystir sér illilega til að vera mikið lengur ein heima af því að hún er alltaf hrædd. Hún er einmana og hún er hrædd. Þannig að þrátt fyrir að við séum með heimahjúkrun, eins og hv. þingmaður, málshefjandi, kom inn á áðan, hvernig er samspil ríkis og sveitarfélaga? Við erum að tala hér annars vegar um heimahjúkrun og svo aðra umönnun sem er á færi sveitarfélaganna. Við verðum einfaldlega að gera betur. Það er ekki nóg að heimsækja einhvern sem býr einn heima í tvo, þrjá klukkutíma í viku. Hvað með allan hinn tímann? Það er ekki nóg að koma í hálftíma á dag. Hvað með hina 23,5 klukkutímana? Okkur er öllum í lófa lagið að vera vakandi fyrir því ef við vitum um einhvern sem er einn, sem er einmana, jafnvel þó að hann vilji ekki taka utan um það að við viljum tala við hann. Við skulum hlusta og við skulum halda áfram að fylgja því eftir að veita honum athygli og gefa honum allan þann tíma sem við getum gert til að honum líði betur. Komum öllum í virkni, verum góð við hvert annað og látum það vera frábært að eldast á Íslandi.