156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

187. mál
[11:44]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Forseti. Loksins, loksins, loksins er ég komin upp í æðsta ræðustól landsins og veit að frumvarpið sem ég er að mæla fyrir núna mun verða að lögum. Ár eftir ár hef ég komið og staðið í þessum stól og mælt fyrir þessu sama frumvarpi en því miður hefur það ekki náð fram að ganga en það mun gera það núna. Þannig að ég er stolt þegar ég mæli fyrir frumvarpi til laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Með frumvarpinu er lagt til að samningurinn verði lögfestur í heild sinni. Markmið lögfestingarinnar er að auka réttaráhrif samningsins hér á landi, tryggja að fatlað fólk njóti til fulls allra mannréttinda og koma í veg fyrir mismunun á grundvelli fötlunar. Hvernig gæti nokkur verið á móti því? Hvernig væri það mögulegt að nokkur einasti einstaklingur, hvort heldur kjörinn eða ekki, væri á móti því? Það myndi vekja mér mikla furðu og margar spurningar.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þann 13. desember árið 2006. Markmið samningsins er að efla, verja og tryggja full og jöfn mannréttindi, grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns á við aðra. Í samningnum má finna fjölmargar greinar sem miða að því að tryggja að fatlað fólk njóti í reynd allra mannréttinda sinna og gera því kleift að taka fullan og virkan þátt í samfélaginu. Hver gæti mögulega verið á móti því? Samkvæmt samningnum teljast til fatlaðs fólks m.a. þeir sem eru með langvarandi líkamlega, andlega eða vitsmunalega skerðingu eða skerta skynjun og sem verða fyrir ýmiss konar hindrunum sem geta komið í veg fyrir fulla og árangursríka samfélagsþátttöku til jafns við aðra. Samningurinn á því við um stóran og fjölbreyttan hóp fólks.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks felur almennt ekki í sér ný efnisréttindi heldur tryggir réttindi sem nú þegar njóta verndar í öðrum mannréttindasamningum. En þó svo að mannréttindasamningar eigi að tryggja réttindi okkar allra hefur fatlað fólk í gegnum tíðina verið líklegra til að njóta ekki mannréttinda sinna í raun og veru auk þess að eiga erfiðara með að sækja rétt sinn. Var því talið nauðsynlegt að útfæra réttindi fatlaðs fólks í sérstökum mannréttindasamningi sem miðar m.a. að því að tryggja jafnrétti, koma í veg fyrir mismunun á grundvelli fötlunar, stuðla að inngildingu, tryggja virka þátttöku fatlaðs fólks og fjarlægja hindranir sem fatlað fólk mætir í samfélaginu. Hver gæti mögulega verið á móti því?

Virðulegi forseti. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks markaði mikil tímamót í mannréttindabaráttu þeirra. Auk þess að skilgreina sjálfsögð réttindi fatlaðra þá byggir samningurinn á þeirri hugmyndafræði að fötlun sé hluti af mannlegum fjölbreytileika frekar en frávik. Í formálsorðum samningsins kemur fram að fötlun sé afleiðing af samspili milli einstaklinga með skerðingar annars vegar og hins vegar umhverfis og viðhorfa sem hindra fulla og árangursríka samfélagsþátttöku þeirra til jafns á við aðra.

Ísland undirritaði samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2007 og fullgilti hann árið 2016. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Flokks fólksins, Samfylkingar og Viðreisnar kemur fram að lögfesta skuli samninginn. Markmiðið með lögfestingunni er að auka réttaráhrif samningsins hér á landi, tryggja að fatlað fólk njóti til fulls allra mannréttinda og koma í veg fyrir mismunun á grundvelli fötlunar. Hver gæti mögulega verið á móti því?

Frá fullgildingu samningsins hefur hann haft töluverð áhrif við lagasetningu og stefnumótun hér á landi. Samningurinn í heild sinni hefur þó ekki lagalegt gildi enn sem komið er. En nú sjáum við sannarlega hilla undir að svo muni verða og bara fyrir næsta sumar, fyrir sumarið í sumar þegar sólin fer að skína þá munum við vera búin að löggilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ég gæti ekki verið sáttari. Og bara svona fram hjá öllu öðru þá vil ég gjarnan segja ykkur frá því að þetta er fyrsta málið sem kom inn á borð nýrrar ríkisstjórnar þegar við vorum að mynda þessa ríkisstjórn. Það þurfti ekki nema nefna samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks til þess að svarið væri: Já, já, já, að sjálfsögðu löggildum við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks einróma, átölulaust. Það þurfti ekki að eyða neinum sérstökum frekari umræðum í það.

Samningurinn í heild sinni hefur þó, eins og við vitum, ekki enn þá lagagildi en mikið verður ánægjulegt þegar þingheimur hefur tekið utan um málið og löggilt það. Ég velkist ekki í neinum vafa og þrátt fyrir að hafa átt frekar erfitt uppdráttar með að fá samninginn löggiltan í stjórnartíð ríkisstjórnarinnar sálugu þá trúi ég því af öllu hjarta að það hafi orðið hugarfarsbreyting á þeim bænum hvað það varðar. Með frumvarpi þessu er lagt til að samningurinn verði lögfestur og þannig tryggt að hægt verði að beita honum sem fullgildri réttarheimild fyrir dómstólum og öðrum úrskurðaraðilum með því að leitast við að auka réttaráhrif samningsins og styrkja mannréttindi fatlaðs fólks á Íslandi. Má í því sambandi benda á að lögfesting mannréttindasáttmála Evrópu og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hefur styrkt stöðu þeirra umtalsvert og aukið vægi þeirra í íslenskri réttarframkvæmd. Til viðbótar við aukin réttaráhrif þá felur lögfesting í sér að við allar breytingar á gildandi lögum og setningu nýrra laga verður tekið mið af samningnum. Eftirlit með framkvæmd samningsins er í höndum nefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks en samningurinn kveður einnig á um að til staðar þurfi að vera sjálfstæð innlend mannréttindastofnun sem hefur eftirlit með honum. Mannréttindastofnun Íslands, sem hefur störf nú á vormánuðum, mun fara með það hlutverk.

Virðulegi forseti. Við fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 skuldbatt íslenska ríkið sig til að koma þeim réttindum sem kveðið er á um í samningnum í framkvæmd. Eins og fram hefur komið hafa þegar verið gerðar ýmsar lagabreytingar og ný lög sett sem miða að því að innleiða samninginn og að aðlaga íslenska löggjöf að honum. Á undanförnum árum hefur einnig verið unnið markvisst að því að koma réttindum samkvæmt samningum í framkvæmd, m.a. með framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks til ársins 2027. Áætlunin byggir á þeirri framtíðarsýn og þeim meginreglum sem fram koma í samningnum og er henni ætlað að vera hluti af heildstæðri stefnumótun þegar kemur að réttindum fatlaðra. Í áætluninni má finna 60 aðgerðir sem miða að því að uppfylla greinar samningsins. Jafnrétti og bann við mismunun eru, eins og áður hefur fram komið, hornsteinn þeirra réttinda sem samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks kveður á um. Jafnrétti er þannig rauði þráðurinn í gegnum allar greinar samningsins og mun lögfesting hans hafa jákvæð áhrif á réttindi allra fatlaðra einstaklinga á Íslandi, óháð aldri, uppruna eða búsetu. Samningurinn tryggir fötluðu fólki víðtæk mannréttindi, borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi. Gæti nokkur einasti einstaklingur verið á móti því?

Forseti. Með frumvarpi þessu er lagt til að alþjóðlegur mannréttindasamningur sem Ísland er aðili að verði lögleiddur í heild sinni. Kallað hefur verið eftir því lengi að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra verði lögfestur hér á landi. Samningurinn felur ekki í sér ný réttindi fyrir fatlað fólk heldur miðar hann að því að fatlað fólk geti notið mannréttinda sinna. Með lögfestingu samningsins stígum við mikilvægt skref í átt að réttlæti og jafnrétti hér á landi.

Að lokinni umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar og aftur segi ég: Til hamingju, þetta er risaskref.