156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

187. mál
[11:56]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir fyrirspurnina. Hvað lýtur að þeirri umgjörð sem hv. þingmaður nefnir, um það hve sjaldan við samþykkjum eða löggildum alþjóðlega samninga heldur undirgöngumst þá bara svona eins og mannréttindasamninginn á sínum tíma, sem við löggiltum síðan einhverjum áratugum síðar þegar við sáum að við vorum í rauninni ekki að fylgja eftir þeim vilyrðum sem við settum inn, þá er það alveg eins með samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Það er ekki nóg að fullgilda samninga hér á landi vegna þess að þeim er venjulega ekki fylgt, eins og hv. þingmaður kannski veit. En hvað lýtur að regluverkinu og hvort við séum í rauninni nógu undirbúin til þess, ef ég skil fyrirspurn hv. þingmanns rétt, að takast á við þau réttindi sem samningurinn kveður á um til handa fötluðu fólki þá erum við það, já. Ég veit ekki betur en að í tíð fráfarandi ríkisstjórnar hafi verið kveðið á um það ítrekað og ævinlega, þegar ég var að mæla fyrir þessum samningi og löggildingu hans á sínum tíma, að regluverkið væri ekki nógu tilbúið til að taka við honum og þess vegna væru þau að taka þessi hænuskref í átt að því að tryggja að ekki yrði árekstur samningsins við aðra löggjöf þannig að þegar hann loksins yrði löggiltur gæti hann framfylgt þeim réttindum sem honum ber að gera til handa fötluðu fólki.

Mér þykir frekar dapurt að hv. þingmaður tali um að þetta frumvarp sé rýrt í roðinu. Ég er algerlega á móti því. Mér finnst frumvarpið algerlega frábært og roðið eins fagurt og það mögulega getur orðið.