samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir síðara andsvar. Ég mun bara halda því fram hér statt og stöðugt að lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sé skilyrðislaus veiting réttinda samkvæmt samningnum. Þegar það er verið að tala um þjónustuþörf eða greiningu á raunverulegri þjónustu í sambandi við sveitarfélögin þá býst ég við að hv. þingmaður átti sig á því, eins og við öll, að hann er ekki þegar kominn til framkvæmda en öll þau verkefni sem við komum til með að fá í fangið í kjölfarið á löggildingu samningsins munum við takast á við með bros á vör. Það var samið um það við stjórnarmyndunarborðið að hvað sem tautar og raular þá munum við leggja okkur í líma við að gera það sem í okkar valdi er til þess að samningurinn nái fullkomlega sínu takmarki og að fatlaða fólkið okkar, sem byggir sinn rétt á þessum samningi, geti haldið áfram að vera bjartsýnt og brosandi og hafi þessar væntingar, raunhæfar væntingar, til þess að samningurinn muni í raun og veru veita því fullkomlega þau réttindi sem hann er að boða. Annað væri hreint og klárt lögbrot. Með lögleiðingu samningsins erum við að tryggja það að einstaklingurinn njóti þeirra mannréttinda, þess jafnræðis og alls þess sem samningurinn boðar, þannig að það væri frekar dapurt ef, eins og næstum því mætti halda út af áhyggjum hv. þingmanns, að hér væru kannski í uppsiglingu endalaus dómsmál af því að við værum ekki að standa við það sem samningurinn á að veita. Það ætlum við að gera og við vonum eftir fremsta megni að við getum algerlega komist hjá því að þurfa að vera meira og minna fyrir dómstólum með réttindi sem samningurinn veitir fólki.