samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Loksins, loksins, loksins. Þetta er gleðidagur, dagur sem fatlað fólk hefur beðið eftir lengi. Í þeirri baráttu sem ég hef háð innan vébanda Sjálfsbjargar í Reykjavík, sem stjórnarmaður í landssambandi Sjálfsbjargar, sem einn af fulltrúum í kjarahópi Öryrkjabandalagsins og einn af fulltrúum í stjórn Öryrkjabandalagsins, hefur það verið eitt okkar aðalmál að löggilda samning Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks. Þetta er gífurlega mikilvægt mál og ég bara fagna því heitt og innilega að við skulum vera komin á þann stað.
Við verðum að rifja upp söguna aðeins. Það hafa verið dregnar lappir af ríkisstjórn eftir ríkisstjórn við það að samþykkja samning Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks. Besta dæmið um það er að í júní 2019 var samþykkt einróma hér á þessu þingi, einróma, þingsályktunartillaga um að vísa því til ráðherra að samþykkja og lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks. Hvað skeði? Sú ríkisstjórn sem þá var við völd, dreif hún í því? Nei, hún fann upp alls konar hindranir til að koma í veg fyrir það að samningurinn yrði lögfestur. Það þurfti að breyta ýmsum lögum og það var endalaust verið að hamra á því að það væri ekki hægt að lögfesta samninginn vegna þess að ekki væri búið að undirbúa þessi og hin lög.
Síðan hefur maður alltaf heyrt þann ótrúlega málflutning, sem mér finnst ofboðslega sorglegur, að allt sem varðar fatlað fólk sé kostnaður. Þetta er ekki kostnaður. Mannréttindi fatlaðs fólks eru ekki kostnaður, þetta eru réttindi. Það er alveg með ólíkindum að þessi hópur skuli alltaf vera tekinn út úr, hvort sem það er hjá fyrrverandi ríkisstjórnum eða sveitarfélögum, og básúnað að hann sé bara kostnaður og eiginlega fyrir.
Við verðum og eigum að sjá til þess í eitt skipti fyrir öll að fatlað fólk hafi sinn rétt. Það hlýtur að vera svolítið undarlegt fyrirbrigði ef við bara horfum á það skýrum augum og spyrjum: Hvers vegna í ósköpunum erum við með þjóðfélag þar sem við þurfum að lögfesta samning um réttindi fatlaðs fólks? Jú, það er vegna þess að ítrekað hafa verið brotin réttindi á fötluðu fólkið. Þess vegna þurfum við þennan samning. Við höfum ótal dæmi um það hvernig komið hefur verið fram við fatlað fólk, gjörsamlega óþolandi dæmi. Viðkvæmustu hópar okkar hafa ekki getað varið sig vegna þess að við höfum ekki getað lögfest samninginn. Þó að við höfum verið með lög sem eiga að gæta réttar þeirra þá hefur það ekki dugað til. Það á að segja okkur að það er eitthvað að okkar kerfi eins og við höfum haft það.
En við í Flokki fólksins höfum barist með kjafti og klóm fyrir því að þessi lögfesting fari fram. Þetta er virkilega gleðidagur fyrir þessa ríkisstjórn sem sýnir það í verki, eftir örstuttan tíma við stjórn, að við erum að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna, við erum að gera það sem við lofuðum. Við munum einnig í haust taka á því sem varðar endurskoðun laga um örorku.
Í sjálfu sér þarf ekki mikið meira um þetta að segja en ég fagna þessu máli og ég fagna því að það á eftir að koma inn í velferðarnefnd og ég mun svo sannarlega taka við því og vinna það hratt og vel vegna þess að þetta eru réttindi sem baráttusamtök fatlaðs fólks hafa barist fyrir undanfarna áratugi. Þetta er fyrsta skrefið. Þegar þessu skrefi er lokið þá tekur við aðlögun að þessu kerfi. Síðan er auðvitað annað sem við eigum eftir að taka á og það er að lögfesta viðauka við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Viðaukinn er í sjálfu sér kæruleið. Þar eru kæruheimildir og þar eru eftirlitsheimildir. Við eigum að sjá til þess í eitt skipti fyrir öll, okkur ber skylda til þess, að fatlað fólk hafi lagalega öll þau réttindi og mannréttindi sem aðrir hafa og við eigum að standa vörð um þau. Núna erum við að taka fyrsta skrefið í þá átt þannig að við skulum bara fagna.