156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

187. mál
[12:48]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur fyrir hennar innlegg og fyrir að telja að það sem ég segi hér komi frá góðum stað, ég þakka fyrir hlý orð í minn garð með það. Og ég ætla að fullyrða að þetta kemur frá góðum stað. Það sem skiptir máli í öllu bókhaldi er það að eiga fyrir hlutunum. Ég held að það sé okkur hollt hér á Alþingi að hugsa þannig varðandi öll mál. Ef við eigum ekki fyrir því sem við lofuðum þá förum við yfir á tékkheftinu. Í gamla daga fékk maður gula miða senda í pósti ef það gerðist. Þá lenti það á manni sjálfum að þurfa að greiða fyrir það. En við erum hér í umboði almennings og þess vegna er það pínulítið sérstakt að þeir sem vilja vera réttu megin við strikið hvað fjárhag þjóðarinnar varðar séu kallaðir kerfiskarlar. Það finnst mér ekki orð sem á við um þá einstaklinga. Það eru bara ábyrgir einstaklingar sem vilja landi og þjóð vel og hvað þá fötluðu fólki eins og við erum að tala um hér. Við höfum bara séð það ítrekað hvernig þessi málaflokkur hefur farið út úr því fjárhagslega moldviðri sem spinnst oft um hann. Ég er einfaldlega að benda á það að af þessu mun líklegast hljótast mun meiri (Forseti hringir.) kostnaður en kemur fram og að fólk þarf að gera sér grein fyrir því hvernig það ætlar að forgangsraða og sækja sér aðrar tekjur til að mæta þeim kostnaði.