156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

187. mál
[12:57]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt að fá tækifæri til að fjalla um þennan stóra málaflokk sem er málefni fatlaðra og með þeim hætti að nú er kominn hér þessi samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem ríkisstjórnin og hæstv. ráðherra vill lögfesta. Það kann að vera að það sé alveg tímabært, ég veit það ekki. Ég veit hins vegar að það er búið að vera að vinna að möguleikum þess að lögfesta hann í a.m.k. áratug, ef ekki lengur, með markvissum hætti. Mér finnst rétt að geta þess vegna þess að mér hefur þótt umræðan hér hingað til vera svolítið á þeim nótunum að þetta sé svona fyrsta málið, fyrstu skrefin í einhverri langri vegferð í framtíðinni og fyrri ríkisstjórnum er fundið það til foráttu að hafa ekki komið fram með þennan samning til lögfestingar löngu fyrr. Hér hefur sérstaklega verið varpað fram þeirri spurningu: Af hverju ekki?

Ég ætla ekki, virðulegur forseti, að bera blak af síðustu ríkisstjórn og mögulega ekki einu sinni þarsíðustu ríkisstjórn þótt ég hafi nú setið í henni. En ég vil þó nefna það hér að mér finnst umræðan um þetta á algerum villigötum. Það er hefð í íslenskri réttarframkvæmd að alþjóðasamningar sem Íslendingar eru aðilar að — sem margir hverjir eru ágætir en aðrir alveg hörmulegir, að mínu mati, en Íslendingar hafa ákveðið að taka þátt í alls konar yfirlýsingum, alþjóðlegum sáttmálum og samningum — eru yfirleitt undirritaðir og fullgiltir kannski en menn láta það vera að lögfesta þá. Það er ekki að ástæðulausu vegna þess að yfirleitt eru svona alþjóðasamningar þess eðlis að á þeim er illa byggjandi fyrir dómi. Þeir eru kannski ekki hentugir og eru ekki hannaðir til að vera bein réttarheimild um réttindi borgaranna. Það má svolítið segja um þennan samning sem er hins vegar mjög góður að efni til, samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Eins og kom fram í máli einhverra hv. þingmanna hér, réttilega að mínu mati, þá hefur hann auðvitað bara sannað gildi sitt í þeirri vitundarvakningu sem ekki var vanþörf á árið 2007 þegar ritað var undir þennan samning. Hann hefur að því leyti sannað gildi sitt að það hefur orðið mikil vitundarvakning, ekki kannski um mannréttindi fatlaðs fólks, þau eru auðvitað ekki af öðrum toga en mannréttindi annarra, öll eigum við sömu mannréttindi, en samningurinn hefur þó vakið menn til umhugsunar um það og vitneskju um það að þarfir fatlaðs fólks í tengslum við þessi mannréttindi geta verið aðrar og stundum ríkari heldur en á við um annað fólk. Það er sjálfsagt og fullkomlega eðlilegt að menn taki tillit til þess.

Það er nákvæmlega það, nú kem ég að því, sem síðustu ríkisstjórnir hafa verið að gera og ég held löggjafinn líka, þær hafa verið að horfa til þess við breytingu á ýmsum lögum. Íslensk löggjöf hefur markvisst og nokkuð ört, leyfi ég mér að segja, verið aðlöguð með tilliti til þessa samnings. Íslensk löggjöf hefur verið aðlöguð. Ég nefni hér mál sem ég þekki, af því að ég ætla kannski ekki í djúpa umfjöllun um einstök atriði hér, um 13. gr. samningsins, um aðgang að réttinum eins og kallað er, dómstólarréttinum. Samningurinn kveður á um að í því skyni að tryggja fötluðu fólki árangursríkan aðgang að réttinum, þ.e. réttarvörslukerfinu, skuli aðildarríkin efla viðeigandi þjálfun fyrir þau sem starfa á sviði réttarvörslu og þar á meðal lögreglu og starfsfólk fangelsa. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að ákvæði sem þetta geta menn illa borið fyrir sig þegar kemur að því að kalla eftir þessum rétti. Það þarf að fara fram aðlögun að íslenskum rétti, íslenskum lögum og reglum til samræmis við þetta. Ég nefni þetta bara vegna þess að það rifjaðist upp fyrir mér að í þeirri tíð þegar ég skipaði embætti dómsmálaráðherra og fór með þennan málaflokk, mannréttindi allra, fatlaðra og allra, þá fór fram endurskoðun á skýrslutökum af fötluðu fólki, bæði gerendum og þolendum, í kynferðisbrotamálum. Það var sérstakt átaksmál í þeim efnum. Um leið var hrundið af stað átaki um aukna þekkingu innan réttarvörslukerfisins á sérþörfum fatlaðs fólks. Ég man ekki betur en að Alþingi hafi samþykkt lagabreytingu sem laut að því að tryggja táknmálstúlkun í dómsal sem hafði ekki verið fram að þeim tíma. Þetta er allt gert einmitt með vísan til þessa alþjóðasamnings um réttindi fatlaðs fólks.

Það eru margar fleiri svona lagabreytingar. Fyrr í umræðunni bara líka á góma lagabreytingu um notendastýrða persónulega aðstoð sem var gerð með vísan til þeirra réttinda og umfjöllunar sem kemur fram í þessum samningi. Það fór fram lagabreyting. Það hefur að vísu ekki tekist nógu vel að framfylgja þeirri lagabreytingu að mínu mati og ég held svo sem að allir séu sammála um það. Það vantar til þess fjármagn og það er nú upphaf og endir alls, fjármagnið. Menn þurfa auðvitað að sníða sér stakk eftir vexti og það þýðir ekki að lofa alls konar þjónustu ef fjármagnið er ekki til staðar. Þá myndu menn vera að skapa óraunhæfar væntingar og það er, held ég, það sem fólk sem reiðir sig á þennan samning þarf síst á að halda. Menn þurfa að vera heiðarlegir með það hversu langt er hægt að ganga í að veita þjónustu á hverjum tíma. Þetta er auðvitað langtímaverkefni. Menn þurfa að hafa það í huga að þjónusta fatlaðs fólk endar ekki með lögfestingu á einhverri einni löggjöf. Það þarf stöðugt að hafa í huga þessi sjónarmið sem koma fram í samningnum vegna þess að þetta eru sjónarmið, viðhorf, eðli máls má kalla, miklu frekar en hnitmiðuð og skorinorð réttindi sem koma fram í þessum samningi. Við þurfum að fara til löggjafarinnar, íslensku löggjafarinnar, til að tryggja það. Þess vegna hef ég spurt hér og ekki fengið svör um það hvort frumvarpshöfundar telji og líti þannig á að nauðsynlegri aðlögun íslenskrar löggjafar að þessum samningi sé lokið í dag eða hvort við eigum von á einhverjum furðulegum flækjum sem upp koma, jafnvel þannig að menn telji að menn leysi slík mál bara fyrir dómstólum. Það er svolítill ádráttur um það í greinargerð, í athugasemdum með þessu frumvarpi, þar sem er nefnt að fari svo að réttarþróun í þjónustu við fatlað fólk á grundvelli dóma sem rekja megi til lögfestingar samningsins muni leggja verulegar auknar skyldur á sveitarfélög verði unnt, nefna frumvarpshöfundar, að framkvæma kostnaðar- og ábatamat á þeim áhrifum samhliða gerð næstu landsáætlunar í málefnum fatlaðs fólks. Hér eru menn sem sagt að láta sig dreyma um það að komi það upp að menn fari með þennan samning og byggi einhvern tiltekinn rétt sinn á því, sem ekki er hægt að vísa til í neinni annarri íslenskri löggjöf, þá verði það bara borið undir dómstóla og dómstólum verði falið að útfæra nánar hver þessi réttur er.

Ég bendi á það og tel það mjög mikilvægt og vil halda því til haga að dómstólar eru ekki heppilegur vettvangur til þess að sækja sér réttindi, hvort sem það eru réttindi fatlaðs fólks eða önnur réttindi. Dómstólar eru ekki vettvangur til að búa til þessi réttindi. Það er hér í þessum sal sem réttindin eru lögfest og formfest. Það þarf að vera alveg skýrt og skorinort í hverju rétturinn felst, hver réttindin nákvæmlega eru.

Af því að ég nefni hér dómstóla þá rifjast líka upp fyrir mér að í þessum samningi er talað um fatlað fólk og eins og eiginlega allt í þessum samningi þá er þetta svona almennt orðað. Það eru sjónarmið sem er verið að vekja athygli á, allt góðra gjalda vert. En hvað eru fatlaðir, hverjir eru fatlaðir? Í þessum samningi sem er verið að lögfesta er það tiltekið sérstaklega að til fatlaðs fólks teljist m.a. þau sem eru með langvarandi líkamlega, andlega, vitsmunalega skerðingu og þar fram eftir götunum. Meðal annars. Ég vil þá rifja það aðeins upp að dómstólar, t.d. Evrópudómstóllinn, sem hefur í sjálfu sér ekkert vægi á Íslandi og ég er ekki að nefna hann hér til að hossa honum sérstaklega, en það er þó rétt að ýmislegt má læra af öðrum dómstólum í ýmsum löndum jafnvel líka — Evrópudómstóllinn hefur farið að túlka hugtakið fatlaðir jafnvel rýmra en ég hygg að flestir Íslendingar kannski myndu gera og a.m.k. íslensk löggjöf myndi túlka og hefur skilgreint fatlaða, gerði það í dómi, minnir mig, fyrir einhverjum áratugum síðan sem vakti athygli.

Það er ekki heppilegt og ekki í samræmi við íslenska réttarskipan að dómstólum sé falið að móta reglur, skapa réttindi fyrir fólk og móta reglurnar um það. Það er afar mikilvægt að löggjafinn átti sig á ábyrgð sinni í þeim efnum og að það verði í framhaldi af þessari umræðu farið rækilega yfir það hvort íslensk löggjöf hafi aðlagað sig nægilega að þessum samningi. Það kann að vera og þá bara fagna ég því, en það var a.m.k. ekki þannig fyrir nokkrum árum vegna þess að menn hafa stöðugt verið að breyta löggjöf. Menn hafa tekið það til sín og löggjöf hefur tekið stakkaskiptum með vísan til þessa samnings, tekið stakkaskiptum síðasta áratug. Mér finnst það ómerkilegur málflutningur að koma hér og halda því fram að nú fyrst sé tekið fyrsta skref í langri vegferð fyrir réttindum fatlaðra. Mér finnst það hreinlega ómerkilegur málflutningur vegna þess að það liggur fyrir að á síðasta áratug hafa ríkisstjórnir til hægri og til vinstri og stjórnmálamenn úr öllum flokkum beitt sér fyrir mikilvægum lagabreytingum í þágu fatlaðs fólks með vísan til þessa samnings.

Ég vil að lokum, virðulegur forseti, benda á, eins og ég gerði í fyrirspurn til hæstv. ráðherra, misræmi sem kemur hér fram varðandi mat á áhrifum og mat á kostnaði. Það liggur fyrir að sveitarfélögin telja kostnaðinn aukast allverulega. Einhvers staðar var mér bent á að þau hefðu jafnvel talað um 14 eða 15 milljarða í þeim efnum sem þyrfti að hafa í huga. Það liggur fyrir að frumvarpshöfundar sjálfir telja áhrifin engin á ríkissjóð en málaflokkurinn liggur hjá sveitarfélögunum og ég hefði viljað sjá ítarlegri greiningu á kostnaðarmati fyrir sveitarfélögin í þessu frumvarpi. Ég tala nú ekki um það reyndar að nú heyrist mér ríkisstjórnin og ráðherrar í ríkisstjórn þessa dagana vera að kynna tillögur um að taka við verkefnum af sveitarfélögum, m.a. að einhverju leyti málefnum fatlaðra. Þetta hefði þurft að kostnaðarmeta og ég mun beita mér fyrir því í hv. velferðarnefnd að það verði gert.

Svo vil ég líka nefna það að þótt það sé nefnt hér að það verði enginn kostnaður þá liggur hins vegar fyrir að það blasir við kostnaður, auðvitað er kostnaður. Það er kveðið á um í þessum samningi alls konar eftirlit og það er auðvitað ávísun á alls konar kostnað. Það er kveðið á um skýrslugjöf, hverja skýrslugjöfina á fætur annarri innan úr stjórnsýslunni. Auðvitað kostar það. Það er kveðið á um einhverja alþjóðlega samvinnu. Það er bara ávísun á einhverja ferðatékka fyrir einhverja starfsmenn í stjórnsýslunni og Stjórnarráðinu, einhverja alþjóðlega samvinnu. Svo er kveðið sérstaklega á um alls konar innlent eftirlit fyrir utan þessa mannréttindastofnun sem var sett á laggirnar á síðasta kjörtímabili, að mínu mati að ósekju, af því samningurinn sjálfur kveður ekki skýrt á um að það þurfi að gera það. En það var gert og það kostar.

Ég velti því fyrir mér og vil alltaf halda því til haga að frá mínum bæjardyrum séð er mest af þessum kostnaði ekki til nokkurs gagns fyrir málefni fatlaðs fólks. Ég hefði viljað sjá og ég vil almennt sjá að fjármunum sé varið í einstök verkefni, sérstakt verkefni til að bæta þjónustu við fatlað fólk, fremur en í stjórnsýsluna, í skýrslugjafir, alþjóðlega samvinnu og fundi á erlendum vettvangi fyrir innlenda stjórnsýslufræðinga úr kerfinu að hitta kollega sína í útlöndum. Þetta kerfi er löngu sprungið hvað kostnað varðar í öllum öðrum málaflokkum og það mun gera það í þessum málaflokki líka ef menn gæta ekki að sér.