samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Hér er um að ræða mikið réttindamál fyrir fatlað fólk ekki síst, sem á sér ákveðna forsögu, mikið réttindamál sem ber þó að skoðast í því samhengi að um ákveðin sjónarmið er að ræða, svo að við pössum okkur nú á því að tala um hlutina eins og þeir eru. Í því samhengi tek ég undir orð hv. þm. Sigríðar Á. Andersen þess efnis hér rétt áðan.
Frú forseti. Ég tel rétt að halda hér til haga forsögunni en lögfesting á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur verið mjög langt ferli sem hófst þegar Ísland undirritaði samninginn árið 2007 í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar en hann var síðan fullgiltur árið 2016, aftur í tíð ríkisstjórnar sömu flokka. Vinna við frumvarp um lögfestingu sáttmálans hófst í tíð seinustu ríkisstjórnar og í kjölfar þess að skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum voru uppfylltar með stofnun Mannréttindastofnunar Íslands í fyrra er unnt að lögfesta samninginn og því má fagna að núverandi ríkisstjórn hafi haldið þeirri löngu vegferð áfram með lokapunkti í því frumvarpi sem hér um ræðir.
Ég vil árétta þetta, frú forseti, því að ummæli hv. þingmanna stjórnarliðsins í þessari umræðu hafa gefið tilefni til þess að fólk sem á hlýðir gæti haldið að hér hafi ekkert gerst í málinu fyrr en núverandi ríkisstjórn settist í sína stóla en það er auðvitað af og frá og í rauninni fyrir neðan allar hellur, frú forseti, að það sé verið að halda svo röngum upplýsingum á lofti hér í þessu ágæta púlti. Það er sjálfsagt í pólitíkinni að skreyta sig með misstolnum fjöðrum eins og gerist en í ljósi þessarar mjög skýru forsögu er fyrir neðan allar hellur hvernig hv. stjórnarliðar leyfa sér að tala um forsögu þess máls og stöðu þessa máls.
Það er þá, eins og ég segi, síðasta ríkisstjórn sem kláraði þennan einna erfiðasta og umfangsmikla lokapunkt með stofnun Mannréttindastofnunar Íslands svo unnt væri að lögfesta samninginn. Það er vissulega þannig að sitt sýnist hverjum um kröfur þeirrar stofnunar og það var niðurstaða síðustu ríkisstjórnar að hana þyrfti að setja á laggirnar með lögum, það var ekki hægt að færa þau verkefni til annarra stofnana sem þegar voru fyrir hendi o.s.frv. Af því hlaust ákveðinn kostnaður. En á móti var hægt að skera niður annan stuðning til mannréttindamála á Íslandi þannig að kostnaðurinn var heilt yfir ekki mikill. Þetta var þá mikilvæg varða á veginum til þess að hægt væri að taka þennan lokapunkt og lögfesta samninginn. Þannig að grunnurinn er sem sagt kominn. Hann tók langan tíma, það voru margar vörður á veginum þar sem fyrrverandi ríkisstjórnir stóðu sína plikt og þetta frumvarp núna er byggt á frumvarpi því sem síðasta ríkisstjórn var byrjuð á og búin að setja í samráðsgátt. Það er að sjálfsögðu ljóst öllum sem vilja skoða það með einhverri sanngirni að það er fyrst og fremst út af því sem núverandi ríkisstjórn getur lagt fram þetta viðamikla mál svo snemma á nýju kjörtímabili nýrrar ríkisstjórnar.
Þetta skiptir máli, frú forseti, að við séum ekkert að ýkja hér einhverja forsögu eða hver hefur gert hvað og góðu fréttirnar eru auðvitað að íslenska þingið og íslensk stjórnvöld, á hvaða tíma sem er, núna í tæp 20 ár, í ríkisstjórnum mismunandi flokka — öll sem eitt hafa gert sitt til að hægt væri að feta þennan mikilvæga veg fyrir réttindi fatlaðs fólks og það er vel. Íslenskt samfélag græðir á því en við hér í orðræðunni græðum ekkert á því að reyna að halda einhverju öðru fram. Það er bara alger óþarfi og það er ekki sanngjarnt og það er ekki réttmætt.
Frú forseti. Að því sögðu þá veldur það mér áhyggjum, eins og hefur komið fram í umræðunni, að það er ekkert kostnaðarmat með frumvarpinu sem liggur fyrir. Sú vinna var ekki yfirstaðin í tíð síðustu ríkisstjórnar, var ekki fullfrágengin þegar sú ríkisstjórn fór frá. Það veldur mér ákveðnum áhyggjum að það virðist ekki hafa verið tekið utan um þann þátt málsins af núverandi ríkisstjórn, ekki betur en lítur út fyrir. Í greinargerð með frumvarpinu segir einfaldlega að samningurinn hafi nú þegar verið fullgildur og innleiddur í ýmis lög og lagaframkvæmd, sem er rétt, og þar segir, með leyfi forseta: „Er því ekki gert ráð fyrir því að frumvarpið hafi áhrif á fjárhag ríkissjóðs …“ Það vekur auðvitað ákveðnar spurningar. Ef það er raunin að frumvarp þetta leiði ekki af sér nein aukin útgjöld ríkisins þá er ekki mikið meira um það að segja en hins vegar er erfitt að trúa því og ég held að það sé augljóst að hæstv. ráðherra virðist varla gera það sjálfur, að enginn kostnaður muni hljótast af þessu, þar sem segir í frumvarpinu, með leyfi forseta:
„Fari svo að réttarþróun í þjónustu við fatlað fólk á grundvelli dóma sem rekja má til lögfestingar samningsins muni leggja verulega auknar skyldur á sveitarfélög, verður unnt að framkvæma kostnaðar- og ábatamat á þeim áhrifum …“
Hér er risastórt spurningarmerki sett inn í framtíðina þar sem það er búið að slá því föstu að möguleg framtíðardómaframkvæmd geti sett ákveðnar skyldur á sveitarfélög. Þetta er auðvitað stórt spurningarmerki sem verður að ná mjög vel utan um. Reyndar tek ég bara undir með hv. þm. Sigríði Á. Andersen varðandi það að alla jafna eru réttindi ekki sótt til dómstóla með þeim hætti sem hér er gert. Í aðra röndina segir ráðherra að frumvarpið feli hvorki í sér ný efnisréttindi né hafi áhrif á fjárhag ríkissjóðs en í hina að það geti vel verið að lögfestingin muni leggja verulegar auknar skyldur á sveitarfélögin með tilheyrandi kostnaði. Og þetta er auðvitað alveg risastór óvissuþáttur sem er hérna settur inn í framtíðina. Ef það er vilji löggjafans að gera það þá er það gott og vel. En það fer ekki alveg saman við það að fullyrða í aðra röndina að enginn kostnaður muni af þessu hljótast.
Þessar áhyggjur hefur m.a. Samband íslenskra sveitarfélaga tekið undir en í umsögn sambandsins við frumvarpið á samráðsgáttinni kemur fram að með lögfestingu sáttmálans séu allar líkur á að þjónusta í málaflokknum verði enn umfangsmeiri og kostnaðarsamari og 14 milljarðar kr. á ári er tala sem jafnvel hefur verið fleygt, segi ég hér án ábyrgðar. En öllum má vera ljóst að ef niðurstaðan er í líkingu við slíkar tölur þá er það eitthvað sem verður að taka miklu betur utan um af hálfu löggjafans en svona í orði kveðnu að halda að þetta eigi einhvern veginn að reddast í framtíðinni og muni að öðru leyti bara koma í ljós. Það er ekki sá háttur sem við viljum helst hafa hér.
Forseti. Ég ítreka að ég er glöð með að þessi langa vegferð þessa samnings sé komin á þann stað sem hún er komin núna og ítreka og minni á að það gerðist ekki af sjálfu sér og tók langan tíma með mörgum ákvörðunum á leiðinni sem allar fyrri ríkisstjórnir, nema reyndar vinstri stjórnin 2009–2013, tóku þátt í, en allar aðrar ríkisstjórnir gerðu það og er það vel. En ég velti því fyrir mér, á þessum stað í málinu þegar við sjáum fyrir endann á þessu, hvernig kostnaðarmat frumvarpsins hafi farið fram. Var litið til framkvæmdar hjá öðrum þjóðum sem hafa lögfest samninginn? Var kannað hvort lögfesting hefði í þeim tilvikum leitt til kostnaðarauka fyrir ríki eða sveitarfélög? Af lestri greinargerðar með frumvarpinu verður ekki séð að fullnægjandi kostnaðarmat hafi farið fram eða mat á áhrifum á réttarframkvæmd ef út í það er farið. Það er hins vegar fullyrt að engin ný efnisréttindi sé að finna í frumvarpinu en á sama tíma sagt að það geti í raun bara vel verið að skyldur sveitarfélaganna aukist verulega, þá jafnvel í milljörðum talið. Hér virðist því undirbúningi frumvarpsins eitthvað vera áfátt, því miður, frú forseti, eftir alla þessa löngu vegferð og það verður tilefni til þess að skoða nánar hvort vinna þurfi málið betur. Fyrir mitt leyti sýnist mér það blasa við. Það er í raun óásættanlegt í svo mikilvægu máli að skilja eftir svona risapóst með risastóru spurningarmerki.