sýslumaður.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir hans ágætu yfirferð. Alþingi hefur frá örófi alda ákveðið að meðferð slíks ríkisvalds sé best fyrir komið hjá hliðsettum stjórnvöldum um land allt, sýslumönnum, og hingað til hefur því verið lýst nákvæmlega í lögum hvað sýslumenn gera og í hvaða umdæmum þeir starfa. Þetta frumvarp gerir hins vegar ráð fyrir umfangsmiklu framsali Alþingis til dómsmálaráðherra sem eftirleiðis er ætlað að lýsa skipulagi embættisins í reglugerð — ekki í lögum heldur í reglugerð — skipulagi sem áður var lýst í lögum. Jafnvel frumvarp hv. þm. Jóns Gunnarssonar, af því að hann hefur borist í tal, gekk ekki svona langt heldur lýsti skipulagi sameinaðs embættis eftir landsvæðum. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra: Hví er það ekki gert í þessu frumvarpi, þ.e. að skrifa það í lög fremur en í reglugerð, og frekar en að skrifa alls konar fallegt í greinargerðina að skrifa það bara í lögin?