sýslumaður.
Frú forseti. Það má vera að ég hafi ekki orðað punktinn minn nægilega skýrt eða að hv. þingmaður hafi misskilið það sem ég fór með. Ég var ofur einfaldlega að rekja að þetta var hluti af því sem rætt var við stjórnarmyndun og í framhaldinu um möguleg þingmál. Þegar þingmálaskrá var lögð fram og hún kynnt þá lágu áform þessarar ríkisstjórnar algerlega skýrt fyrir. Hún ætlaði að leggja fram sitt eigið mál um það að sameina embættin vegna þess að þarna voru atriði sem þurfti að betrumbæta úr annars ágætu máli hv. þm. Jóns Gunnarssonar. Ég treysti mér til að fullyrða að það hafi aldrei gerst í tíð síðustu ríkisstjórnar að ríkisstjórn hafi hætt við mál á þingmálaskrá vegna þess að þingmannamál hafi komið fram úr stjórnarandstöðu. Það ætla ég að leyfa mér að fullyrða, ofur einfaldlega vegna þess að síðasta ríkisstjórn vann alltaf þannig að það varð ekkert um þingmannamál stjórnarandstöðunnar. Þau dóu alltaf og sofnuðu í nefnd. Ég er meira að tala um þann vilja ríkisstjórnarinnar sem verið hefur frá því að hún var stofnuð. Bæði í stjórnarmyndunarviðræðum, í umræðum eftir stjórnarsáttmála og þegar þingmálaskrá var lögð fram og kynnt þá er ríkisstjórnin með áform um að leggja fram sitt eigið mál sem er ekki eins og þingmannamálið sem hér liggur fyrir þinginu. Það er auðvitað ekkert skrýtið við það. Mig langar að halda því skýrt til haga að þessi ríkisstjórn vinnur ekki eftir dagatali Sjálfstæðisflokksins, það er bara þannig, og hún ætlar sér ekki að gera það. (Gripið fram í.) Ég veit að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins skilja nákvæmlega að það er mjög farsæl lausn að gera það þannig.
Mig langaði að spyrja hv. þingmann um það, úr því að hv. þingmaður telur að það sé svona mikil sátt um þetta mál í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, (Forseti hringir.) að það eru bara tveir þingmenn sem flytja þetta þingmál. Það hefði verið í lófa lagið að þeir væru fleiri. (Forseti hringir.) Svo er það auðvitað þannig að hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir vildi ekki halda áfram með mál Jóns Gunnarssonar (Forseti hringir.) sem þá var hæstv. dómsmálaráðherra. Því er ekkert skrýtið að við séum að rukka Sjálfstæðisflokkinn um raunverulega afstöðu flokksins (Forseti hringir.) til þeirra mála sem hér eru til umræðu, þó að ég efist ekkert um meginmarkmiðin.
(Forseti (KÁB): Forseti vill árétta að þingmenn haldi ræðutíma.)