sýslumaður.
Frú forseti. Mér þykir mikið verið að drepa málum á dreif. Efnislega er til umræðu og er gagnrýnivert að ríkisstjórnin hafi mjög mikið fyrir því og fari alls konar fjallabaksleiðir fram hjá því að vinna með nánast efnislega samhljóða mál sem lá fyrir þegar þetta mál sem hér um ræðir var lagt fram. Um það snýst málið. Hv. þingmaður nefnir að við séum ekki að vinna eftir dagatali Sjálfstæðisflokksins — nei, við erum að vinna eftir dagatali þingsins sem ég myndi halda að hæstv. ríkisstjórn, eða ég óska þess, bæri sæmilega virðingu fyrir og fyrir störfum okkar hvað þetta varðar. En þrátt fyrir að hv. stjórnarliðar séu kannski ekki að vinna eftir dagatali Sjálfstæðisflokksins þá eru þeir svolítið mikið að vinna eftir málum Sjálfstæðisflokksins. Það er gott og vel, við fögnum því þegar málin okkar fá framhaldslíf, en auðvitað vekur það upp spurningar þegar verið er að drepa málum á dreif um hver hafi stutt þetta mál, hvernig, hversu og hvað og eitthvað sem kemur málinu ekkert við.
Það er alveg skýrt, og það vita allir, að sú ríkisstjórn sem var við völd undanfarin sjö ár var ekki sammála um alla hluti, þar á meðal um þetta mál. Það að mismunandi ráðherrar eða pólitíkusar á hverjum tíma ákveði fyrir sitt leyti hvort þeir vilji fara út í vegferð sem þeir kannski gera sér grein fyrir eða hafa ekki væntingar um að muni ganga neitt langt, þegar sú afstaða lá þegar fyrir, er pólitísk ákvörðun sem hver og einn tekur og er alger óþarfi fyrir hv. þingmann að hafa áhyggjur af skoðunum Sjálfstæðisflokksins í þessu máli. Það kemur málinu ekki við og er einhver aum tilraun til þess að búa til aðalatriði úr aukaatriðum til að fela þá staðreynd að hér er verið að taka mál sem liggur fyrir, breyta um nafn á því og stela af því krediti. Um það snýst málið. Það hversu margir eða fáir Sjálfstæðismenn séu á málinu; (Forseti hringir.) hv. þingmaður veit vel að hér er bara um fyrirslátt að ræða. (Forseti hringir.) Það er algjör dagamunur á því hversu mikið fólk er meðvitað um hvaða mál eru í gangi á hverjum tíma og það þarf ekkert að lesa í það. (Forseti hringir.) Nú þurfum við því miður að halda áfram að vinna með bæði þessi mál. Við eyðum tíma þingsins í að vinna með (Forseti hringir.) tvö efnislega nánast samhljóða mál, því miður. Það er ákvörðun ríkisstjórnarinnar og um það snýst málið.
(Forseti (KÁB): Forseti vill minna þingmenn á að virða ræðutíma.)