sýslumaður.
Virðulegur forseti. Við erum að ræða hér frumvarp um sýslumannsembætti. Hv. þm. Hildur Sverrisdóttir fer töluvert yfir það hvað er í frumvarpinu og hvað er ekki í því. Við erum að ræða þetta frumvarp og að fram sé komið annað samhljóða frumvarp inn í þingið. Það er hins vegar ekki þannig að þetta séu samhljóða frumvörp, þau taka efnislega á sama þætti en það er þó nokkur munur á og auðvitað mikilvægt að horfa á það. Ríkisstjórnin leggur fram frumvarp sem er í anda þeirra áherslna sem hún hefur í þessu og meiri hlutinn hér á þingi, sem skiptir auðvitað mjög miklu máli. Þar eru t.d. undir atriði varðandi staðsetningu á embættinu, sýslumannsembættinu, að það sé ekki sett í lög hvar það eigi að vera staðsett þannig að það er auðvitað hægt að vinna með það. Það er talað um ákveðið leikrit, að það sé eitthvert leikrit í gangi hvað þetta varðar, sem er auðvitað af og frá. En ríkisstjórnin þarf að leggja fram það mál sem hún telur mikilvægt.
Mig langar að spyrja hv. þm. Hildi Sverrisdóttur hvort henni finnist betri bragur á því að lögð séu fram frumvörp á þinginu sem innihalda ekki efnislega þau atriði sem ríkisstjórnin vill hafa í þeim og að meðferð þingsins verði þá frekar í þá átt að breyta meira en ella.