sýslumaður.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans seinna andsvar. Ég get ekki heyrt annað en að þeir punktar sem hann kom fram með undirstriki í raun athugasemdir mínar í þessu máli; að það er hægt að gera breytingar á málum. Já, vissulega. Hér lá fyrir þingmannamál hv. þm. Jóns Gunnarssonar og ef meiri hlutinn, ef hv. stjórnarliðar, vill gera á því breytingar þá er það sjálfsagt. Það er hlutverk okkar hér. Ég átta mig kannski ekki alveg á því í hverju vandamálið er fólgið annað en að ríkisstjórnin vildi sjálf skreyta sig með þessu ágæta máli. Ég get alveg haft skilning á því. Ég ætla samt að gera athugasemd við það. Við erum að eyða tíma þingsins og við erum að ræða tvö samhljóða mál áður en það fer í þinglega meðferð sem er hlutverk okkar hér þar sem einmitt eru gerðar breytingar.
Ég verð að fá að gera athugasemd við orð hv. þingmanns þegar hann segir að það sé ekki gott þegar mál breytist mikið í nefnd. Nú, af hverju er það ekki gott? Þingleg löggjafarnefnd má gera þær breytingar sem hún vill. Hún er löggjafinn. Ráðherrarnir eru ekki löggjafinn, ráðuneytin eru ekki löggjafinn, framkvæmdarvaldið er ekki löggjafinn. Og ég trúi því varla að ég þurfi að standa hér í þrígang í dag og rifja upp þrígreiningu ríkisvalds og af hverju það skiptir máli að framkvæmdarvaldið sé eitt og löggjafarvaldið annað og dómsvaldið hið þriðja. Það er grafalvarlegt, frú forseti, ef hv. stjórnarliðar líta svo á að það sé til vansa ef löggjafinn gerir breytingu á lögum sem koma frá ráðherranum, að það sé óheppilegt. Það er hlutverkið. Til þess vorum við öll kosin hingað inn. Það er verkefnið okkar og það ber okkur að gera. Ef stjórnarliðar ætla að gera það í tveimur, þremur, fjórum, fimm eða sex samhljóða málum, bara svona til þess að enginn annar sé að fá kredit af vinnunni sem var unnin, þá verða þeir að eiga það við sig. (Forseti hringir.) En löggjafinn á að vinna sína vinnu. Það er löggjafinn sem gerir það, ekki ráðherra.