156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

sýslumaður.

186. mál
[15:06]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. dómsmálaráðherra, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, fyrir framsögu hennar um mikilvægt mál sem er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins um einfalda stjórnsýslu og sameiningu stofnana. Meginmarkmið frumvarpsins er að bæta þjónustu við almenning og hámarka nýtingu fjárheimilda og efla byggðir landsins, m.a. til að framfylgja þeim markmiðum sem stefnt er að í byggðaáætlun og stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.

Virðulegi forseti. Í 3. gr. frumvarpsins er fjallað um hæfisskilyrði sem gerð eru til þess einstaklings sem hlýtur skipun í embætti sýslumanns. Í ákvæðinu eru nýmæli því ekki er gert ráð fyrir því að sýslumaður hafi lokið embættisprófi í lögfræði eða grunnnámi ásamt meistaraprófi í lögum en slík krafa hefur verið gerð til sýslumanna um langa hríð. Ég fagna því að umsækjendahópurinn um þetta mikilvæga embætti verði ekki takmarkaður við þá sem lokið hafa laganámi. Í mínum huga er mikilvægara í svo fjölmennu embætti sem embætti sýslumanns verður, um 260 manns, að viðkomandi hafi mikla og góða rekstrarþekkingu og stjórnunarreynslu. Ég er hér á engan hátt að gera lítið úr lögfræðimenntun enda er margt lögfræðimenntað fólk með góða reynslu af rekstri og stjórnun og uppfyllir öll hæfisskilyrði laganna um skipun í embætti.

Í greinargerð með frumvarpi því sem hér er til umræðu segir, með leyfi forseta:

„Í ljósi stærðar hins nýja embættis og fjölda starfsfólks þykir mikilvægt að þrengja ekki um of hæfisskilyrðin og takmarka þannig möguleika hæfra stjórnenda til að sækjast eftir skipun í embættið. Við ákvarðanatöku um breytt hæfisskilyrði var að auki horft til stjórnendastefnu ríkisins sem gefin var út í júní 2019.“

Rétt er að geta þess sérstaklega að í 2. mgr. 3. gr. frumvarpsins er áskilnaður þess efnis að löglærðir fulltrúar embættisins hafi lokið fullnaðarprófi í lögfræði, þ.e. embættisprófi eða grunnnámi ásamt meistaraprófi í lögum. Það verður því enginn skortur á lögfræðiþekkingu hjá hinu nýja embætti þó svo að svo gæti háttað til að sýslumaðurinn sjálfur hefði lokið öðru háskólanámi.

Virðulegi forseti. Þær úttektir sem gerðar hafa verið á sameiningu sýslumannsembætta árið 2015 benda til að markmið með sameiningu þá hafi ekki náðst að fullu. Því er lögð til í frumvarpinu þessi sameining með það að markmiði að efla þjónustu sem sýslumaður veitir landsmönnum enn frekar.

Sýslumannsembættin hafa undanfarin misseri fært starfsemi sína í auknum mæli í stafrænt form, ef svo má að orði komast. Skipulagið hefur þó þótt nokkuð óskýrt og falið í sér kostnað og óskilvirkni. Við sameiningu embættanna mun verða auðveldara að setja aukinn kraft í að færa starfsemi embættisins á stafrænt form. Mig langar að nefna að skattstofur landsins voru sameinaðar undir hatti ríkisskattstjóra fyrir nokkrum árum og þykir sú sameining hafa tekist vel enda hefur því embætti sem nú heitir Skatturinn tekist afar vel til að færa stóran hluta af þjónustu sinni við landsmenn á stafrænt form. Það má svo sannarlega líta til þeirrar stafrænu vegferðar og taka sér til fyrirmyndar.

Virðulegi forseti. Í frumvarpinu eins og það lítur út nú hafa verið gerðar tvær breytingar frá því að það var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á fyrra kjörtímabili. Í fyrsta lagi er ekki gert ráð fyrir því að innra skipulag embættis sýslumanns verði lögbundið en með því að lögbinda það er hætta á því að takmörkuð verði verulega geta til sveigjanleika til að bæta þjónustu og stuðla að hagkvæmum rekstri og að erfiðara yrði að efla starfsemi embættisins á landsbyggðinni. Þá er og nú gert ráð fyrir meira samráði við skipulagningu embættisins og að fylgja eftir breytingum. Rök standa til þess að þessar breytingar styrki rekstrargrundvöll embættisins og styðji betur við þau markmið að við sameiningu verði framfarir í starfsemi sýslumanns, hagræðing náist og byggðir landsins eflist.