156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

sýslumaður.

186. mál
[15:10]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég sé ekki hæstv. dómsmálaráðherra hér í salnum og vil óska þess að forseti geri tilraun til þess að tryggja það að ráðherrann sé hér og hlusti á mál okkar við 1. umræðu eins og rík hefð er fyrir í þinginu og eiginlega virðing við okkur í 1. umræðu að geta átt samskipti beint við ráðherra. Mér finnst það bagalegt að svo sé ekki. Við erum komin á síðasta dag þessarar fundaviku og mér væri skapi næst að taka mig af mælendaskrá þangað til að hæstv. ráðherra væri mættur í salinn þannig að ég bið hæstv. forseta að gera einhverjar þær ráðstafanir að gera ráðherranum viðvart um að ég æski viðveru hennar í salnum. Það er alkunna að ráðherrar eiga að sitja 1. umræðu og hefð er fyrir því nema einhver bráð forföll kalli á fráveru hæstv. ráðherra. Ég vona að forseti hafi heyrt mál mitt og geri eitthvað í því.

Varðandi þetta mál þá er mér líka skapi næst að furða mig nokkuð á þeirri umræðu sem hér hefur komið fram. Sambærilegt mál var lagt fram á síðasta þingi og fékk umsagnir, allflestar mjög neikvæðar. Þáverandi hæstv. dómsmálaráðherra, Jón Gunnarsson, tjáði mér og þingheimi þá að hann hefði farið og rætt við sýslumenn og sýslumenn væru allir sammála málinu. Síðan bárust umsagnir frá sýslumönnum, hæstv. forseti, og það sem gerðist var að sýslumenn fóru líka að hafa samband við okkur þingmenn og kom þá í ljós að það voru nánast engir sýslumenn sammála þeirri vegferð sem þá var verið á. Ég heyrði andsvar hæstv. ráðherra við hv. þm. Ingibjörgu Isaksen þar sem ráðherrann viðurkenndi það, fullyrti þó ekki, gekk ekki alveg eins langt og forveri sinn þó að hún sé að koma hér með mál sem sé mjög svipað máli hæstv. fyrrverandi ráðherra, núverandi hv. þm. Jóns Gunnarssonar, sem hann er aukinheldur búinn að leggja hér fram og er þó skömminni skárra að því leytinu að þar er verið að lögfesta hvar starfsstöðin er af því að við þekkjum það öll hér í salnum, ekki síst við sem erum fulltrúar landsbyggðarinnar, kjörin af landsbyggðinni eða úr kjördæmum landsbyggðarinnar, að það er alsiða og venja, því miður, allt að því náttúrulögmál, að þegar höfuðstöðvarnar eru ekki lögfestar þá enda þær alltaf í Reykjavík, alltaf. Hér gengur ráðherrann aðeins lengra í þá átt að tryggja með öllum hætti að verkefnið færist í borgríkið þar sem tveir þriðju þjóðarinnar búa. Núverandi ríkisstjórn virðist ekki hafa nokkra tilhneigingu, ekki nokkra, til þess að sporna við því með því að færa störf með öruggum hætti út á land. Og þetta er dæmi um það.

Ég tek eftir því að hæstv. ráðherra hefur ekki enn mætt í salinn. Ég treysti því að hæstv. ráðherra sé að hlýða á mál okkar hérna í þingsal við 1. umræðu þótt einhverra hluta vegna sé ráðherra ekki í salnum. Ég geri alvarlega athugasemd við það, ítrekað.

Ég vil segja að á tímum þegar við sáum hnignun á landinu, fækkun fólks, fækkun verkefna hringinn í kringum landið, þá var ekki óeðlilegt að menn gripu til miðstýringar sem stjórntækis og færðu stofnanir saman, sameinuðu verkefni, færðu þau nær því þar sem mestur fólksfjöldinn er. En þegar við horfum á þá þróun fara að ganga of langt eins og við höfum séð — Ísland hefur gengið langlengst allra sambærilegra landa í kringum okkur, Ísland er miklu meira borgríki heldur en til að mynda öll Norðurlöndin, 86% íbúanna búa á milli Hvítár og Hvítár, tveir þriðju búa hér á höfuðborgarsvæðinu — þá finnst manni eðlilegt að ríkisstjórn hvers tíma leggi sig fram um að byggja upp þjónustu ríkisins hringinn í kringum landið en haldi ekki áfram að draga kraftana frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins eins og við erum búin að gera í 150 ár, með undantekningum þó þar sem menn hafa markvisst verið að færa verkefni út á land, til þess m.a. að tryggja að þar sé eðlilegt hlutfall opinberra starfsmanna miðað við íbúafjölda.

Nú hefur það verið að gerast á síðustu árum, sem betur fer, að fólki hefur fjölgað á landsbyggðinni. Þar er uppbygging, tökum Vestfirði sem dæmi, tökum Austfirði og við getum auðvitað horft á samfélög sem eru nær suðvesturhorninu. Það er gríðarleg fjölgun. Þá skyldi maður ætla að ríkið, ríkisvaldið, ríkisstjórnin myndi horfa á það. Hér fyrir nokkrum árum var horft til þess að á Íslandi væru átta umdæmi, átta þjónustuumdæmi. Það er fín tala. Það vill svo til að það eru gömlu kjördæmin sem höfðu um langa hríð haft með sér ákveðið samstarf út af því og þjónustan hafði gjarnan þróast með þeim hætti að fólk sem bjó á þessum tilteknu átta svæðum leitaði á sama stað. Þess vegna var ekki óeðlilegt þegar sýslumannsembættunum var fækkað úr 29 að þeim yrði einmitt fækkað niður í átta. Síðan var Vestmannaeyjum bætt við af því að þar var ákveðin sérstaða. Það væri mikilvægt að það væri einn opinber embættismaður ríkisins með kaskeiti á höfðinu, einn valdsmaður í hverju héraði í þessum átta þjónustueiningum, þar sem gætu verið átta heilbrigðisstofnanir, átta heilbrigðisumdæmi sveitarfélaga, af því að ég sé hér hv. þm. Sigurjón Þórðarson. Það gæti verið svoleiðis. Þetta gætu verið átta einingar, þetta gætu verið átta útstöðvar ríkisfyrirtækjanna, allar á sama stað undir hatti sýslumannsins sem væri æðsti embættismaður ríkisins á þeim stað.

Nei, nei, þetta á allt að fara í burtu vegna hagræðingar. Hagræðingar fyrir hvern? Og hver er hagræðingin? Það kemur einfaldlega ekki skýrt fram hver hagræðingin á að vera. Fyrst um sinn á hagræðingin að skila því að borga fólki biðlaun og breytingar á kerfinu og svo á með reynslunni að koma í ljós hvaða áhrif önnur hagræðing skili. Svo hefur þetta ekki áhrif á þetta og hitt. En það er ekki minnst á hvaða áhrif þetta hefur á þjónustuna við fólkið, upplifun fólksins sem býr í þessum átta þjónustukjörnum ríkisins sem menn hafa verið að reyna að vinna eftir en nú á að taka í burtu.

Mér finnst við á rangri leið. Þið heyrið á máli mínu að ég er nokkuð æstur yfir þessu vegna þess að mér finnst þetta svo rangt. Og þegar það eru komin tvö frumvörp, eitt frá hv. þm. Jóni Gunnarssyni og Sjálfstæðisflokknum um þetta og síðan frá ríkisstjórninni, þá velti ég fyrir mér: Hvert er þessi þingsalur að fara? Er hann alveg hættur að horfa til þess að verja hagsmuni alls Íslands? Er hann hættur að horfa til þess að það sé nauðsynlegt að hafa ríkisvald á átta stöðum á Íslandi, að fólk geti leitað til fólksins sem sinnir þjónustunni? Við segjum í þessum sal að allir sitji við sama borð. Allir eiga að njóta sömu þjónustu, allir Íslendingar. Þegar kemur að æðsta embættismanni ríkisins þá á að taka hann burt.

Það er sagt að þjónustan verði bara betri með stafrænni þjónustu. Hv. þm. Grímur Grímsson fór hérna upp og lýsti alveg réttum veruleika, að hagræðing og stafræn væðing Skattsins tókst. En hvað gerðist fleira? Hver er starfsmannaþróunin hjá útibúum Skattsins hringinn í kringum landið? Hvernig hefur hún verið og hjá stærri fyrirtækjum sem hafa farið í þessa vegferð? Hver er hún? Hún endar með því, hægt og rólega, að þú getur ekki einu sinni búist við því að ná framgangi í starfi ef þú ferð út á land. Þú getur ekki hækkað, það er ekkert hægt að komast ofar. Hverjir fá síðan deildarstjórastöðurnar og millistjórnendastöðurnar í þessu batteríi? Það eru þeir sem búa næst höfuðstöðvunum, þar sem sýslumaðurinn er, þar sem skattstjórinn er, þar sem yfirmaður mismunandi ríkisstofnana er.

Höfum við virkilega ekki efni á því að reka átta þjónustustöðvar ríkisins hringinn í kringum landið þar sem við myndum láta sýslumannsembættið vaxa sem þjónustumiðstöð og fá verkefnin þar inn? Er virkilega ekki hægt í nútímaheimi að fara í stafræna væðingu með þeim hætti að verkefnin geti flotið á milli og verið unnin á mismunandi þjónustuskrifstofum þar sem er þó einn æðsti yfirmaður ríkisins valdsmaður í héraði? Er það virkilega svo að við þurfum að fara í eitthvað sem heitir hagræðing en hún er ekki skilgreind? Hún á að standa undir biðlaunum og einhverjum svona undirbúningskostnaði og reynslan á síðan að sýna hvort það verði eitthvað fleira. Ef hér væru milljarðar þá skildi ég þetta. Ef hér væri sýnt fram á að þjónustan yrði jafn góð þá myndi ég skilja þetta. En hér er bara verið að vaða af stað og draga kraftinn úr landsbyggðunum sem eru að vaxa, sem eru ekki að draga saman. Það er rangt að halda áfram miðstýringaráráttunni þegar við erum að vaxa. Við ætlum að byggja upp allt landið, ekki satt? Af hverju erum við þá á þessari vegferð? Fyrir hvaða peninga? Hver er ágóðinn?

Nú hef ég haldið hér þrumuræðu, að eigin mati, og ég sé á hv. þingmönnum að þeir eru hálfsvekktir yfir þessu. (Gripið fram í: Nei, nei. ) Ég bað um að ráðherrann væri hérna og ég skil ekki af hverju ráðherrann situr ekki hér undir 1. umræðu síns máls. Það er hefð hjá okkur. Það er mikilvægt að ráðherrann geti átt hér milliliðalaus samskipti. Það gæti t.d. verið að ráðherra myndi vilja svara mér en hann gerir það ekki. Það gæti verið, en ekki ef hann er ekki á staðnum, jafnvel þó að hann sé einhvers staðar að hlusta. Þetta er ekki nógu gott. Ég beini því til nýrrar ríkisstjórnar, af því að ég hef séð það í öðrum málum hjá öðrum ráðherrum að þeir sitja ekki í salnum í 1. umræðu, að þetta er mikilvægt. Ég lagði mig fram um að gera það. Það má örugglega finna dæmi þar sem ég gat það ekki en ég lagði mig fram um að gera það þegar ég var ráðherra. Það er mikilvægt fyrir okkur í þingsalnum að geta átt þessi samskipti við ráðherra beint. Til þess er þingsalurinn, til þess er 1. umræða. Hún er til þess að kveikja fyrstu viðbrögðin. Síðan fáum við umsagnirnar.

Ef umsagnirnar verða nú aftur eins og umsagnirnar sem bárust um málið frá fyrrverandi dómsmálaráðherra á síðasta kjörtímabili, hvað ætlar meiri hlutinn þá að gera? Ætlar hann þá að koma bara og segja, eins og stendur hérna í þessu plaggi, að aðrar umsagnir voru ekki þess eðlis að það þyrfti að svara þeim? Þær voru allar á móti þessu. Byggðastofnun benti á að þessi vegferð væri andbyggðarleg, hún færi gegn stefnu þáverandi stjórnvalda um að byggja upp landið vegna þess að það væri verið að taka valdsmanninn úr héraði, eina embættismanninn sem þó er eftir, taka hann úr héraði og setja hann eitthvert. Samkvæmt þessu frumvarpi á ráðherrann að setja reglugerð um hvar hann verður. Ég spyr hv. þingmenn sem eru hérna í salnum, þeir geta bara rétt upp hönd: Hver trúir því að hann endi einhvers staðar annars staðar en hérna í Reykjavík? Hver trúir því?

Þetta er einfaldlega ekki góð vegferð sem núverandi ríkisstjórn er á. Þetta er einfaldlega ekki gott mál sem hæstv. dómsmálaráðherra er að leggja fram. Þetta er einfaldlega ekki nægilega vel undirbyggt. Og þrátt fyrir allar þær neikvæðu umsagnir sem komu vegna sambærilegs máls á síðasta kjörtímabili þá virðist ráðherrann ekki hafa tekið tillit til þeirra. Hún kemur bara hérna strax með málið upp á nýtt. Meginmarkmiðið á að vera hagræðing, hagræðing sem hvergi er skrifuð út. Það stendur ekki hér að þetta eigi að skila hundruð milljóna á hverju einasta ári og fari síðan vaxandi og vaxandi. Ef svo væri þá gætum við kannski farið að taka umræðu um það og hvaða þjónustuskerðingar eru á móti. Það er bara sagt: Nei, það á að leggja sig allan fram um að það verði engin þjónustuskerðing. Það á að leggja sig allan fram um að finna fleiri störf. Af hverju er það ekki hægt við núverandi aðstæður? Af hverju er ekki hægt við núverandi aðstæður, þó að það væru átta sýslumenn með vald í héraði, að færa verkefni á milli þeirra með lagabreytingu? Af hverju er ekki hægt að fara í samræmingu á verkefnum þar sem einn yrði sérhæfður í einu máli og annar í öðru? Af hverju er það ekki hægt? Af hverju er ekki hægt að taka þá umræðu sem umsagnirnar frá síðasta þingi sögðu? Af hverju er það ekki hægt? Er það vegna þess að núverandi ríkisstjórn og Sjálfstæðisflokkurinn eru gengin í eina sæng um að leggja niður valdsmanninn í héraði, að draga úr krafti landsbyggðarinnar? (Forseti hringir.) Er það það sem núverandi ríkisstjórn er að stæra sig af með framlagningu á þessu frumvarpi?

(Forseti (HildS): Forseti hefur komið skilaboðum áleiðis til hæstv. dómsmálaráðherra um að nærveru hennar sé óskað í salnum undir þessari umræðu.)