156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

sýslumaður.

186. mál
[15:26]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir ræðuna, sannkölluðu eldmessa og áhugavert á að hlusta. Mig langar áður en lengra er haldið að nefna að hæstv. dómsmálaráðherra þurfti að bregða sér frá í embættiserindum en er væntanleg aftur hingað. Við vitum auðvitað að það getur verið svolítið erfitt að stilla tíma af út frá dagskrá þingsins því að það veit enginn fyrir fram hvernig þingstörfin ganga fyrir sig. En ráðherrann ætlar að koma aftur hingað í hús. En ég skil þessar áhyggjur vel og það var reyndar líka skýrt tekið fram af hæstv. ráðherra að við skiljum allar þær áhyggjur sem hv. þingmaður nefnir hér. Og þessi mynd sem verið er að draga upp — það er ekki ætlunin með frumvarpinu, með þessu máli.

Það hefur svolítið verið talað um staðsetningu embættisins. Ég ætla bara að tala fyrir mig hérna núna. Mér finnst að það eigi að vera staðsett á landsbyggðinni. Ég ætla að tala fyrir því á meðan málið er til vinnslu og ég veit að fleiri innan stjórnarliðsins eru þeirrar skoðunar að svo verði. Það er gert ráð fyrir sérstökum starfshópi sem á að tryggja að starfsemin úti á landi verði efld, það er eitt af meginmarkmiðum frumvarpsins.

En mig langaði bara ofur einfaldlega til að spyrja hv. þingmann um það að ef samkomulag næðist um að staðsetja embættið einhvers staðar úti á landi, á einhverjum góðum stað sem hentar vel, hvort það myndi færa hv. þingmenn nær því að samþykkja þessi áform. Það er ekki þannig að verið sé að reyna að sjúga súrefni af landsbyggðunum. Það er raunverulega verið að reyna að gera hið andstæða við það, þ.e. að efla byggðirnar úti á landi, m.a. með stofnun starfshóps og ákveðinni rýni á því hvernig það verði best gert. En mig langaði að spyrja hvort þetta staðsetningarmál væri þess eðlis að það gæti haft áhrif á skoðun hv. þingmanns og flokks hans á málinu í heild sinni.