sýslumaður.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka bæði forseta og hæstv. ráðherra fyrir að bregðast snöggt við. Ég hef fullan skilning á því að það er mikið að gera í störfum ráðherra en það er mikilvægt að virða það að sitja, ef einhver kostur er, 1. umræðu þegar menn leggja fram mál þar sem fram geta komið áhugaverð sjónarmið sem mikilvægt er að bregðast við.
Varðandi spurningu hv. þm. Sigmars Guðmundssonar: Nei, það mun ekki breyta minni afstöðu. Kjarninn í ræðu minni snýst um það að í mínum huga eigum við að horfa á Ísland sem eina heild en skipta þjónustusvæðunum til að mynda niður í átta. Ég veit ekki hvort fjögur væri nóg, í mínum huga hafa átta verið mjög góð af því að Ísland er stórt land og fólk þarf hugsanlega að geta farið á einhvern einn stað þar sem er þjónustumiðstöð. Þá finnst mér það lykilatriði að æðsti embættismaður ríkisins sé þar yfir. Mér finnst hins vegar vel koma til greina — og ég skal viðurkenna það að í nútímaheimi á ég erfitt með að skilja að ekki sé hægt að samræma stafræna þjónustu með þeim hætti að hún sé sérhæfing á einum stað þó svo að það séu átta yfirmenn. Ég bara trúi því ekki að það sé ekki hægt. En ég trúi því að það sé auðveldara að byggja upp öflugar einingar, þjónustumiðstöðvar, ef þær eru með þessum hætti þar sem fólk getur átt framgang á viðkomandi stað.
Það er mjög margt annað í þessu máli sem mig langaði til að ræða en ég hafði bara ekki tíma í þessari 1. umræðu til þess að koma inn á þær áhyggjur sem ég hef af því að fara í þessa vegferð. Það mun þó í engu breyta afstöðu minni, og ég held ekki flokksins, hvort menn myndu skilgreina sýslumanninn úti á landi einhvers staðar. Og hv. þingmaður sagði að hann myndi gera það ef hann væri ráðherra og stýrði reglugerðinni og að einhverjir þingmenn stjórnarliðsins vildu það. En ef það væru einhverjir aðrir? Það er skömminni skárra, ef þetta verður að lögum, að binda staðsetninguna í lög en það hjálpar ekki þeirri meginhugsun sem ég var að lýsa hér áðan og breytir henni ekki.