156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

sýslumaður.

186. mál
[15:33]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég er í raun og veru ósammála því. Mín skoðun er sú að við á löggjafarþinginu getum sett lög. Í núgildandi lögum, og ég skil þau þannig, eru umdæmamörkin á þann veg að æðsti embættismaðurinn er yfir öllum þeim ólíku verkefnum sem sýslumenn standa frammi fyrir, sem spanna auðvitað allan lífsferil mannsins, fyrir utan önnur verkefni sem tengjast lögaðilum og einhverju slíku. Ég get ekki séð að ekki sé hægt að setja löggjöf á Íslandi þar sem við værum hreinlega að fara í sérhæfingu innan ákveðins ramma eða einhver verkefni í hinum stafræna heimi; það birtist okkur þá þannig að almenningur, hvar sem fólk býr á landinu, fer inn á island.is, sækir um eitthvað og svo fari málið bara á sýslumannsskrifstofuna á Húsavík eða á Blönduósi eða í Kópavogi, bara eftir atvikum, og síðan fáum við bara svar í gegnum hina stafrænu gátt.

Ég verð að viðurkenna að þó að ég hafi talað um það í ríkisstjórn á sínum tíma — þegar þáverandi ráðherra var með áform uppi um að leggja þetta mál fram sagði ég að ég myndi verða á móti því og hvatti til þess að sú leið yrði frekar skoðuð að samhæfa störfin þannig að gagnvart almenningi og þeim sem þurfa að sækja sér þjónustuna gæti verið ein gátt en verkefnin væru hins vegar tryggð með því að hafa sýslumenn og valdsmann í héraði, sem mér finnst skipta máli. Ég veit ekki hvort það getur verið vegna þess að langflestir þingmenn búa jú hér á þessu svæði að þeir hafa ekki sama skilning fyrir því að það skiptir máli, fyrir virðingu þess sem býr úti á landi, að þar sé einn embættismaður ríkisins sem sé með kaskeiti, bara hreint út sagt; að þetta snúist svolítið um sjálfsvirðingu fólks, hvar það býr og hvaða upplifun það hefur af þjónustu ríkisins.