sýslumaður.
Virðulegi forseti. Hér ræðum við mikilvægt mál sem tengist að miklu leyti landsbyggðinni og áhrifum á hana og, verði þetta að veruleika óbreytt, í rauninni breyttum veruleika fyrir landsbyggðina. Ég tel að þetta breyti ekki einungis skipulagi sýslumannsembættanna heldur einnig valdahlutföllum í stjórnsýslunni, vissulega líka atvinnuskilyrðum á landsbyggðinni og trausti almennings til opinberrar þjónustu. Ég tel afar mikilvægt að við stöldrum aðeins við og metum af fullri alvöru afleiðingarnar sem þessi breyting getur haft.
Hér er talað um að meginmarkmið þessa frumvarps sé hagræðing. Hins vegar er ekkert hægt að sjá í þessu frumvarpi hvar og hver hagræðingin verður. Hér kemur fram, með leyfi forseta: „Samkvæmt fyrirliggjandi langtímaáætlun er gert ráð fyrir að útgjöld lækki vegna áhrifa breytinga í yfirstjórn og stoðþjónustu.“ Þarna er hreinlega verið að leggja niður vel launuð störf og færa þau til höfuðborgarinnar og miðstýra þjónustunni enn frekar. Svo kemur hér fram, með leyfi forseta: „Reynslan ein mun leiða í ljós í hversu miklum mæli næst að fjölga opinberum verkefnum enn frekar á landsbyggðinni …“ Ég er ekki að sjá að þetta sé neitt í hendi heldur frekar bara í lausu lofti og það eigi einhvern veginn bara að sjá hvernig tekst til. Einnig kemur ekkert fram um fjölda starfa sem mun skapast við þetta eða áhrifin sem þetta mun hafa á landsbyggðina og ekki heldur hvaða spennandi störf, líkt og hæstv. ráðherra nefndi hér í sínu máli, munu skapast né heldur um launakjörin sem fylgja þessum spennandi störfum.
Megintilgangur frumvarpsins er að sameina öll sýslumannsembætti landsins í eitt undir einum embættismanni með aðsetur í Reykjavík. Að baki þessari hugmynd býr sannarlega vilji til hagræðingar og samræmingar og við í Framsókn erum nú þeirrar skoðunar að það sé alltaf mikilvægt að velta við öllum steinum til að skoða hvernig við getum ráðstafað fjármunum okkar með sem bestum hætti. En það er samt mikilvægt að láta ekki hraðann og yfirborðskennd rök yfirskyggja afleiðingarnar sem þetta mun hafa fyrir samfélagið. Það er nú þannig að landsbyggðin skaffar okkur orkuna sem við notum dagsdaglega. Hún skapar gríðarlegar útflutningstekjur. Þetta eru landsmenn allir mjög ánægðir með og þiggja en hins vegar þegar kemur að því að skapa frekari tækifæri á landsbyggðinni þá er það nú yfirleitt þannig að landsbyggðin á í vök að verjast. Þegar við markvisst flytjum störf út á landsbyggðina þá er það hending ef þau störf haldast á landsbyggðinni.
Við þessa breytingu er vald sem nú er til staðar á mismunandi stöðum á landinu fært í miðlæga stjórn og fjarlægt frá fólkinu sem það þjónar. Það felur einmitt í sér að sérfræðistörf sem hingað til hafa verið unnin í héraði verða tekin frá viðkomandi starfsstöðvum og færð undir miðlægt valdhafakerfi hér í borginni. Með þessu mun viss sérfræðiþekking og reynsla hverfa af landsbyggðinni sem er grafalvarlegt því að þessi störf eru ekki aðeins störf fyrir menntað og reynt starfsfólk, þau eru í raun undirstaða þess að landsbyggðin geti haldið áfram að vera sjálfbær og sjálfstæð í opinberri þjónustu. Þegar slík sérfræðistörf hverfa þá dregur það ekki aðeins úr atvinnutækifærum heldur einnig úr möguleikum fólks til að búa og starfa í heimabyggð með reisn. Þetta eru störf með ábyrgð og áhrif og þau skipta máli fyrir samfélögin. Auk þess er verið að taka vald og störf úr héraði og getur þessi breyting leitt til þess að þjónusta fjarlægist íbúa og þrátt fyrir góðan vilja um aukna rafræna þjónustu og aukna samræmingu þá er veruleikinn sá að margir munu þurfa persónulega aðstoð við erfið úrræði. Þessi þjónusta þarf að vera veitt af fólki sem þekkir aðstæður, hefur tengsl við samfélögin og getur brugðist skjótt við.
Þegar ég er að tala um þessa rafrænu þjónustu og að það eigi að efla hana þá er afar mikilvægt líka að í áætlunum ríkisstjórnarinnar komi fram auknir fjármunir einmitt til þess að efla þessa rafrænu þjónustu. Mér skilst á sýslumönnum að það séu alls kyns verkefni í gangi en þau nái hins vegar ekki framgangi vegna þess að það er skortur á fjármunum og hvet ég hæstv. ríkisstjórn til þess að bæta úr því.
Þegar við erum að færa allt vald til Reykjavíkur, sem nægt er nú fyrir, þá erum við að minnka lýðræðislegt aðhald. Sýslumenn hafa hingað til verið ábyrgir gagnvart samfélaginu sem þeir þjóna með skýra tengingu við sveitarfélög og íbúa og þeir vilja, eftir mitt samtal við þá, halda í það. En ef þeir eru allir undir einum yfirmanni í borginni þá færist ákvarðanataka fjær fólkinu.
Virðulegur forseti. Þrátt fyrir að hér sé verið að endurskipuleggja þjónustu sem snertir daglegt líf allra landsmanna þá er upplifun þeirra sem hafa komið með ábendingar í samráðsgátt sú að þeir hafi fengið takmarkað tækifæri til að koma þeim að með virkum hætti og ekki hafi verið tekið tillit til þeirra raka. Svör við grundvallarspurningum um t.d. kostnað og áhrif og framtíðarsýn eru afar óljós. Við höfum hvorki fengið heildstæða greiningu á kostnaði breytinganna né á því hvaða áhrif þær hafa á störf í héraði, þjónustu við viðkvæma hópa og byggðaþróun. Ég myndi telja að það væri ekki forsvaranlegt að lögfesta svona víðtæka breytingu án þess að hafa þessar upplýsingar á borðinu.
Virðulegi forseti. Hvað getum við gert í staðinn? Það er mjög auðvelt fyrir þingmenn í stjórnarandstöðu að gagnrýna endalaust það sem lagt er fram af stjórnarliðum og koma ekki með nein rök eða tillögur um hvað sé hægt að gera betur. Mig langar að koma hér með nokkrar tillögur. Það er hægt að fara í aukið samstarf í stað sameiningar. Sýslumannsembættin geta unnið markvisst saman án þess að þau séu formlega sameinuð. Með auknu samstarfi, samnýtingu verkferla og tækni næst hagræðing án þess að taka störf og vald úr héraði. Það er hægt að auka völd til að samræma vinnulag og tryggja jafnræði í þjónustu og láta embættin sjálf standa áfram með ábyrgð á sínu svæði. Það er hægt að viðhalda sérfræðistörfum í héraði með því að tryggja með lögum að sérfræðistörf verði áfram í héraði og að þjónustustigi verði viðhaldið eða aukið. Þetta er fjárfesting í landsbyggðinni og sjálfbærri þróun. Það er mikilvægt að hér fari fram heildargreining áður en kerfisbreytingarnar eru samþykktar, eins og kom fram hér áður, tryggja að öll gögn liggi fyrir áður en við tökum ákvarðanir þar sem ekki er hægt að snúa við. Það er einnig mikilvægt líka að efla samráðið.
Nú mun þetta frumvarp að öllum líkindum fara til allsherjar- og menntamálanefndar, ef ég þekki það rétt, og það er mikilvægt líka að nefndin fái alla umsagnaraðila á sinn fund og ræði þetta og sé reiðubúin til að gera þær breytingar sem fagfólkið leggur til því að, virðulegur forseti, við eigum ekki samþykkja breytingar sem svipta samfélögin valdi og fækka tækifærum í héraði án skýrrar sýnar og traustra gagna. Ég bind vonir við að ríkisstjórnin sjái það því það er mikilvægt að við byggjum stjórnsýsluna okkar á nærveru, trausti og virku lýðræði og hlustum á þá sem þekkja til málanna.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili en fagna því að ráðherra sé komin hér í hús til að fylgjast með umræðunni.