156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

sýslumaður.

186. mál
[15:43]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Mig langaði aðeins að forvitnast og spyrja út í afstöðu hennar til frumvarpsins. Eins og það blasir við mér er markmið frumvarpsins einmitt að efla þjónustu á landsbyggðinni, að hægt sé að færa verkefni með auðveldari hætti út á landsbyggðina með þessum breytingum.

Greiningin á bak við frumvarpið er sú að það sé í raun auðvelt að leggja niður sýslumannsembætti sem slík, ekki sé þörf á því að vera með alla þessa sýslumenn. Þeir hafa verið að þjónusta fleiri umdæmi en sín eigin og ekki hefur verið endurskipað í embætti sýslumanna þegar þeir hafa hætt störfum sem dæmi.

Mig langar að spyrja: Er hv. þingmaður á móti markmiðum frumvarpsins eins og þau koma fram í frumvarpinu eða er þetta frekar ótti við það sem gæti gerst, að störfin gætu farið af landsbyggðinni og suður, að það verði þróunin? Það sem ég les í textanum og það sem ég heyri frá ráðherranum er einmitt að það eigi að fjölga sérfræðistörfum á landsbyggðinni, efla þjónustu á landsbyggðinni eða standa vörð um störf á landsbyggðinni. Nú eru ekki sýslumenn í öllum byggðarkjörnum landsins og það er ekki þannig ef sýslumaðurinn fer úr einu byggðarlagi að það leggist af. Við viljum efla blómlega byggð burt séð frá því hvort þar sé sýslumaður starfandi. Spurningin er: Ertu á móti rökunum sem eru lögð fram eða er þetta frekar ótti um það sem gæti hugsanlega gerst?

(Forseti (HildS): Forseti beinir því til hv. þingmanna að beina orðum sínum að forseta.)